Erlent

Reyndi að hengja sig með nær­fötunum sínum

Samúel Karl Ólason skrifar
Kim Yong Hyun, fyrrverandi varnarmálaráðherra Suður-Kóreu.
Kim Yong Hyun, fyrrverandi varnarmálaráðherra Suður-Kóreu. EPA/SHAWN THEW

Fyrrverandi varnarmálaráðherra Suður-Kóreu, sem var nýverið handtekinn vegna tilraunar Yoon Suk Yeol, forseta landsins, og hans til að koma á herlögum, reyndi að svipta sig lífi í fangelsi. Þá ríkir umsátursástand um skrifstofu forsetans, þar sem lögregluþjónar reyna að framkvæma húsleit.

Kim Yong Hyun, varnarmálaráðherrann, er sagður hafa reynt að svipta sig lífi í gærkvöldi en var stöðvaður af öryggisvörðum og er sagður við góða heilsu, samkvæmt AP fréttaveitunni.

Yonhap fréttaveitan frá Suður-Kóreu segir Kim hafa reynt að hengja sig með samanbundnum nærfötum.

Hann hafði verið færður í varðhald skömmu áður en var ekki formlega handtekinn á þeim tímapunkti. Hann var þó handtekinn skömmu síðar eftir að dómstóll samþykkti handtökuskipun á hendur honum vegna aðkomu hans að tilraun Yoon til að koma á herlögum og fyrir misbeitingu valds. Hann er sá fyrsti til að vera handtekinn vegna herlaganna.

Kim er grunaður um uppreisn og stendur frammi fyrir að minnsta kosti fimm ára fangelsisdómi eða jafnvel dauðadómi.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.

Óvænt herlög

Það kom flestum á óvart þegar Yoon lýsti því yfir í síðustu viku að hefði sett á herlög í Suður-Kóreu og sagðist hann hafa gert það til vernda ríkið gegn gegn öfgaöflum og meintum kommúnistum í Suður-Kóreu. Hann hefur átt erfitt með að koma frumvörpum í gegnum þingið og hefur sömuleiðis kvartað hástöfum yfir því að stjórnarandstaðan sé sífellt að leggja fram vantrauststillögur gegn embættismönnum.

Kim sendi hermenn að þinghúsinu til að loka því og koma í veg fyrir að þingmenn kæmust þar inn.

Þingmönnum tókst þó að samþykkja ályktun um að binda enda á herlögin. Samkvæmt stjórnarskrá landsins er forseta skylt að verða við slíkri kröfu frá meirihluta þingmanna og gerði Yoon það nokkrum klukkustundum síðar.

Í heildina höfðu herlög verið í gildi í um sex klukkustundir.

Kim og Yoon eru gamlir skólafélagar og þegar ráðherrann var staðfestur í embætti fyrir um þremur mánuðum sökuðu meðlimir stjórnarandstöðunnar hann um að vilja beita herlögum. Fregnir hafa borist af því að Kim hafi lagt það til við forsetann að setja á herlög þegar Yoon sagðist hafa fengið nóg af pólitískum andstæðingum sínum.

Mótmælendur með myndir af Yoon Suk Yeol, forseta, og Kim Yong Hyun, varnarmálaráðherra.AP/Ahn Young-joon

Stendur einnig frammi fyrir ákæru

Lögregluþjónar fóru í morgun að skrifstofu Yoon og reyndu að framkvæma húsleit þar. Öryggisverðir forsetans komu þó í veg fyrir það og ríkir nokkurskonar umsátursástand þar. Yoon stendur einnig mögulega frammi fyrir ákæru fyrir uppreisn, samkvæmt Yonhap, og hefur honum verið meinað að fara frá landi.

Rannsakendur hafa fengið heimild til að framkvæma leit á skrifstofunni og á skrifstofum öryggisvarða forsetans og á skrifstofum herforingjaráðs Suður-Kóreu, en allt er þetta í sömu byggingunni.


Tengdar fréttir

Forsetinn verður ekki ákærður

Forseti Suður-Kóreu verður ekki ákærður vegna neyðarherlaga sem hann setti í gildi fyrr í vikunni. Flestir þingmenn stjórnarflokksins yfirgáfu þingsalinn þegar atkvæðagreiðslan fór fram.

Yfirgáfu þingsalinn fyrir atkvæðagreiðsluna

Ólíklegt er að ákæra um embættismissi á hendur forseta Suður-Kóreu nái í gegnum Suður-kóreska þingið. Langflestir þingmenn stjórnarflokksins yfirgáfu þingsalinn áður en atkvæðagreiðslan hófst. Mikil vonbrigði eru meðal mótmælenda.

Þúsundir mótmælenda vilja afsögn forsetans

Þúsundir mótmælenda eru fyrir utan þinghús Suður-Kóreu. Í dag verður kosið um vantrauststillögu gegn forsetanum Yoon Suk Yeol eftir að hann lýsti yfir neyðarherlögum í landinu fyrr í vikunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×