Sport

Oftar leitað að Littler en Karli Breta­konungi og Star­mer á Goog­le

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luke Littler er orðin ein stærsta íþróttastjarna Bretlands.
Luke Littler er orðin ein stærsta íþróttastjarna Bretlands. getty/Zac Goodwin

Á þessu ári leituðu Bretar aðeins oftar að tveimur manneskjum á Google en pílukastaranum unga, Luke Littler. Breskir notendur Google leituðu til að mynda oftar að honum en Karli Bretakonungi og forsætisráðherranum Keir Starmer.

Littler vakti heimsathygli þegar hann komst í úrslit á HM í upphafi ársins. Milljónir manns fylgdust með úrslitaleik hans og Lukes Humphries í sjónvarpi.

Frægðarsól Littlers hefur svo risið enn frekar síðustu mánuðina og hann er orðinn einn þekktasti íþróttamaður Bretlands. Leitartölur Google sýna það bersýnilega.

Bretar leituðu oftast að honum á Google af öllum íþróttamönnum á þessu ári og þeir leituðu aðeins oftar að tveimur manneskjum en honum. Það voru Katrín, prinsessa af Wales, og Donald Trump Bandaríkjaforseti.

„Þetta hefur verið stórkostlegt ár fyrir mig persónulega og fyrir pílukastið í heild sinni. Ég trúi því eiginlega ekki að ég sé ofar á þessum lista en forsætisráðherrann og kóngurinn,“ sagði Littler er leitartölurnar á Google voru bornar undir hann.

„Á svona frábæru íþróttaári er ég mjög stoltur af því að vera sá íþróttamaður sem fólk leitaði oftast að,“ bætti Littler við.

Sá íþróttamaður sem Bretar leituðu næstoftast að var jafnaldri Littlers, fótboltamaðurinn Lamine Yamal sem leikur með Barcelona og spænska landsliðinu. Þar á eftir kom svo fimleikastjarnan bandaríska, Simone Biles.

Littler undirbýr sig núna fyrir heimsmeistaramótið sem hefst á sunnudaginn. Hann kemur inn í 2. umferð og mætir þar sigurvegaranum úr viðureign Fallons Sherrock og Ryans Meikle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×