Fótbolti

Aston Villa henti RB Leipzig út úr Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ross Barkley fagnar hér sigurmarki sínu fyrir Aston Villa í kvöld.
Ross Barkley fagnar hér sigurmarki sínu fyrir Aston Villa í kvöld. Getty/Maja Hitij

Aston Villa vann dramatískan 3-2 sigur á þýska liðinu RB Leipzig í Meistaradeildinni í kvöld og ensku liðin héldu því áfram að vinna þau þýsku í Evrópu í vetur.

Ross Barkley skoraði sigurmark Villa manna fimm mínútum fyrir leikslok en hin mörkin skoruðu John McGinn á þriðju mínútu og John Duran á 52. mínútu.

Ikoma Lois Openda og Christoph Baumgartner jöfnuðu báðir en það dugði ekki þýska liðinu til að halda sér á lífi í keppninni.

Tapið þýðir að RB Leipzig á ekki lengur möguleika á því að komast í útsláttarkeppnina enda stigalaust við botninn. Seinna markið kom eftir skelfileg mistök Emiliano Martinez, markvarðar Aston Villa, en hann slapp með skrekkinn á endanum.

Þetta var betra kvöld fyrir þýsku liðin Bayern München og Bayer Leverkusen.

Nordi Mukiele tryggði Leverkusen 1-0 sigur á Internazionale með marki á 90. mínútu. Það var fyrsta markið sem Inter menn fá á sig í keppninni í vetur. Leverkusen komst fyrir vikið upp í annað sætið.

Þeir deila því með Aston Villa, Inter og Brest sem vann 1-0 sigur á PSV Eindhoven í kvöld. Öll eru með þrettán stig, fimm stigum á eftir toppliði Liverpool.

Bayern München er í áttunda sætinu eftir 5-1 stórsigur á Shakhtar Donetsk. Michael Olise skoraði tvö mörk en hin mörkin skoruðu þeir Konrad Laimer, Thomas Müller og Jamal Musiala.

Club Brugge vann 2-1 sigur á portúgalska félaginu Sporting Lissabon sem gengur illa eftir að liðið missti þjálfarann Ruben Amorin til Manchester United.

Paris Saint-Germain vann líka mikilvægan sigur í kvöld en liðið sótti þrjú stig til Salzburg eftir 3-0 sigur. Goncalo Ramos, Nuno Mendes og Désiré Doué skoruðu mörkin en Achraf Hakimi lagði upp tvö þeirra. PSG er í 24. sæti eftir sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×