Viðskipti innlent

Að­stoðar­maður Katrínar til Aton

Árni Sæberg skrifar
Bergþóra var lengi aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Bergþóra var lengi aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Aton/Baldur Kristjánsson

Bergþóra Benediktsdóttir hefur hafið störf sem ráðgjafi hjá samskipta- og hönnunarstofunni Aton. Hún var aðstoðarmaður Katrínar Jakobsdóttur alla forsætisráðherratíð hennar.

Í fréttatilkynningu frá Aton segir að Bergþóra hafi mikla reynslu úr stjórnmálum, stjórnsýslu og atvinnulífinu. Þekking hennar og reynsla muni efla fjölbreytta liðsheild, sem Aton byggi á í margþættum verkefnum fyrir viðskiptavini félagsins.

Hótel- og mannauðsstjóri

Bergþóra hafi verið framkvæmdastjóri þingflokks Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs áður en hún hóf störf sem aðstoðarmaður forsætisráðherra árið 2017. Hún hafi einnig fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu, hafandi starfað í ferðaþjónustu um sjö ára skeið, meðal annars sem forstöðumaður gistisviðs Radison Blu Hótel Sögu og sem hótelstjóri, bæði hér heima og erlendis. Þá hafi Bergþóra starfað sem mannauðsstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Plain Vanilla áður en hún hóf að starfa innan stjórnmála.

„Það er mikill fengur að hafa fengið Bergþóru til liðs við okkur hjá Aton. Fjölbreytt reynsla og menntun starfsfólksins er okkar helsti styrkur og Bergþóra kemur afar sterk inn í þann hóp. Innsæi hennar og skilningur á samfélaginu og stjórnmálum er ómetanleg viðbót auk reynslu hennar úr atvinnulífinu og stjórnsýslu. Við bjóðum Bergþóru hjartanlega velkomna og hlökkum svo sannarlega til samstarfsins,“ er haft eftir Sif Jóhannsdóttur, rekstrarstjóra Aton.

Tók líka þátt í forsetaframboðinu

Bergþóra sagði ekki skilið við Katrínu um leið og hún sagði af sér sem forsætisráðherra heldur var hún kosningastjóri framboðs hennar til forseta í sumar.

Gera má ráð fyrir því að Bergþóra hafi kynnst starfi Aton í kosningabaráttunni, enda sá fyrirtækið, sem þá hét Aton.JL, um ásýnd framboðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×