Körfubolti

„Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir dullað sér úr“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Andri Már Eggertsson, Nablinn, fékk að smakka saltfisk hjá Gauta Dagbjartssyni.
Andri Már Eggertsson, Nablinn, fékk að smakka saltfisk hjá Gauta Dagbjartssyni. Vísir/Stöð 2 Sport

Keflavík og Grindavík áttust við í stórleik Bónus-deildar karla í körfubolta síðasta föstudag. Andri Már Eggertsson, Nablinn, skellti sér í matarboð fyrir leik í tilefni af því.

Grindvíkingar unnu sterkan átta stiga sigur er liðið heimsótti Keflavík í Bónus-deild karla síðastliðið föstudagskvöld. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum, en eftir sigurinn situr Grindavík í þriðja sæti deildarinnar en Keflavík í því fimmta.

Fyrir leik fór Nablinn hins vegar á stúfana og tók púlsinn á spenntum stuðningsmönnum liðanna. Hann kíkti í matarboð til Gauta Dagbjartssonar, Grindvíkings sem búsettur er í Keflavík, þar sem dýrindis saltfiskur var á boðstólnum.

„Þetta kemur nú þannig til að við Grindvíkingar erum búnir að vera óttalegir flóttamenn og enduðum víða, ansi mörg hér í Keflavík.“

„Þetta kemur eiginlega til af því að ég var beðinn um að vera ræðumaður á leikmannakvöldi Keflavíkur snemma í haust fyrir fyrsta leik. Nema það breyttist og ég var orðinn ræðumaður, veislustjóri og svo þurfti ég að sjá um uppboð líka. Þetta var pínu erfitt því ég held nefnilega með Grindavík ennþá. En við ákváðum félagarnir að bjóða upp að við myndum boðið í veislu sem yrði annaðhvort haldin heima hjá viðkomandi eða hér heima hjá mér. Svona keppnisdæmi. Við reiknuðum ekki með að þetta myndi seljast, en þetta seldist og hér erum við,“ sagði Gauti.

Þá segist Gauti ekki hafa búist við því að flytja nokkurntíma til Keflavíkur.

„Það stóð aldrei til, en hér er mjög gott að búa. Það er rosalega gott fyrir svona meðalgreindan mann eins og mig að vera innan um þessa vitleysinga,“ sagði Gauti léttur.

Klippa: „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér úr“

Að lokum fékk Nablinn svo að smakka saltfiskinn sem Gauti var búinn að elda og var hann hrifinn af því sem kom upp úr pottunum. Gauti sagðist svo vera með mjög einfalda reglu þegar hann býður í mat.

„Ég er mjög einfalda reglu þegar ég elda matinn. Ef að gestunum líkar maturinn þá segja þeir kokkinum frá því. Ef þeim líkar ekki maturinn þá geta þeir bara drullað sér út.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×