Erlent

Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa

Samúel Karl Ólason skrifar
Uppreisnarmenn í jaðri Aleppo í gær.
Uppreisnarmenn í jaðri Aleppo í gær. AP/Ghaith Alsayed

Uppreisnar- og vígamenn hafa náð tökum á bróðurparti Aleppo-borgar í Idlib héraði í Sýrlandi eftir umfangsmikla skyndisókn og hafa þeir einnig náð tökum á stóru svæði kringum borgina á undanförnum þremur dögum. Í nótt tóku uppreisnarmenn kastala Aleppo, í miðri borginni.

Um er að ræða stærstu árásina gegn sveitum Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, um árabil og virðist hún hafa komið her forsetans alfarið í opna skjöldu. Myndefni sem uppreisnarmenn hafa birt á netinu bendir til að þeir hafi lagt hald á mikið magn hergagna í herstöðvum í og nærri Aleppo.

Þar á meðal eru skrið- og bryndrekar og flugskeyti til að skjóta niður flugvélar og þyrlur.

Aleppo var lengi eitt af höfuðvígum uppreisnarinnar í Sýrlandi en féll í hendur Assad-liða, eftir umfangsmikil og langvarandi átök, árið 2016. Undanfarin ári hafa litlar breytingar átt sér stað á víglínunni í norðvesturhluta Sýrlands en átök af þessari stærðargráðu hafa ekki átt sér stað á svæðinu frá 2020.

Þá gerðu ráðamenn í Rússlandi og Tyrklandi samkomulag sem ætlað var að draga úr átökum á svæðinu. Rússar styðja Assad og Tyrkir hafa staðið við bakið á uppreisnarmönnunum.

Sóknin er leidd af sveitum Hayat Tahrir al-Sham, eða HTS, sem er í einföldu máli sagt vígahópur sem tengdist á árum áður al-Qaeda og hét þá Nusra Front. Hópurinn, sem leiddur er af manni sem heitir Abu Mohammed al-Joulani, er nú talinn sá stærsti af uppreisnarhópum í Sýrlandi. Áhugasamir geta lesið frekar um HTS á vef Center For Strategic & International Studies.

Sjá einnig: Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo

Heimildarmenn Reuters í sýrlenska hernum segja ráðamenn í Rússlandi hafa heitið Assad-liðum aukinni hernaðaraðstoð en hún muni ekki byrja að berast fyrr en eftir þrjá sólarhringa. Hermönnum hefur samkvæmt fréttaveitunni verið skipað að hörfa undan uppreisnarmönnunum í Aleppo.

Nú í morgun segjast uppreisnarmennirnir hafa náð tökum á fjölda þorpa bæði suður og norður af Aleppo en þegar þetta er skrifað hefur það ekki verið staðfest með myndefni. Það bendir þó til þess að mikil óreiða ríki meðal Assad-liða

Áhugasamir geta séð grófa mynd af stöðunni við Aleppo á korti, hér á vef Liveuamap.

Uppreisnarmenn taka sjálfur við skriðdreka sem þeir tóku í gærkvöldi.AP/Ghaith Alsayed

Nokkrar fylkingar eru á svæðinu kringum Aleppo. Sýrlenskir Kúrdar og bandamenn þeirra í regnhlífarsamtökunum Syrian Democratic Forces eða SDF eru einnig sagðir hafa sent sveitir manna á svæðið.

Bakhjarlar Assad uppteknir

Reuters hefur einum af leiðtogum uppreisnarmannanna að það hafi hjálpað þeim verulega að Íranar og bandamenn þeirra í Hezbollah hafi ekki getað aðstoða Assad-liða að miklu leyti.

Íranar og Rússar eru stuðningsmenn Assad og innkoma þeirra og Hezbollah-samtakanna inn í borgarastyrjöldina í Sýrlandi á árum áður kom líklega í veg fyrir að Assad yrði velt úr sessi.

Rússar eiga eins og frægt er fullt í fangi með innrás í Úkraínu. Þá hafa átök milli Ísrael annars vegar og Íran og Hezbollah hinsvegar komið verulega niður á bæði Hezbollah og Byltingarverði Íran.

BBC hefur eftir samtökunum Syrian Observatory for Human Rights, sem hafa lengi vaktað átökin í Sýrlandi að að minnsta kosti 277 hafi fallið í átökum síðustu daga og þar á meðal rúmlega tuttugu óbreyttir borgarar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×