Skoðun

Hug­verka­iðnaður: Fram­tíð Ís­lands í verðmæta­sköpun

Bergþóra Halldórsdóttir, Guðrún Halla Finnsdóttir og Hjörtur Sigurðsson skrifa

Hugverkaiðnaður hefur tekið gríðarlegum framförum á undanförnum árum og gegnir sífellt stærra hlutverki í íslensku efnahagslífi. Í dag er greinin ein af fjórum meginstoðum útflutnings á Íslandi, og vöxtur hennar endurspeglar hvernig nýsköpun, frumkvöðlastarf og öflug og hvetjandi starfsskilyrði geta knúið fram verðmætasköpun og aukinn efnahagslegan stöðugleika.

Árið 2023 námu útflutningstekjur hugverkaiðnaðar 264 milljörðum króna, og spáð er að þær fari yfir 300 milljarða króna á þessu ári. Á síðustu fimm árum hafa útflutningstekjur greinarinnar um það bil tvöfaldast. Við lok þessa áratugar gæti hugverkaiðnaður orðið verðmætasta útflutningsstoð Íslands​​. Hugverkaiðnaður byggir á fjárfestingu í þróun á breiðum grunni sem nær allt frá tölvuleikjagerð og upplýsingatækni til líf- og heilbrigðistækni, lyfjaframleiðslu og hátækni á fjölbreyttum sviðum.

Drifkraftur hugverkaiðnaðar

Þennan árangur má þakka elju og framlagi þeirra 18.350 einstaklinga sem starfa í greininni. Starfsfólk fyrirtækja í hugverkaiðnaði býr yfir framúrskarandi hæfni en störf í hugverkaiðnaði eru heilt yfir háframleiðnistörf. Þá hefur áhersla stjórnvalda á stuðning við rannsóknir og þróun verið lykilþáttur í hröðum vexti greinarinnar. Með skattahvötum hefur Ísland byggt upp umhverfi þar sem frumkvöðlar fá ríkt tækifæri til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika​​.

Mikilvægt fyrir framtíð Íslands

Áframhaldandi vöxtur hugverkaiðnaðar hefur mikil og jákvæð áhrif á hagkerfið. Aukning í útflutningstekjum og fjölgun starfa í greininni dregur úr sveiflum í hagkerfinu og eykur stöðugleika. Stefnumörkun stjórnvalda á síðustu árum hefur einnig leitt til þess að Ísland er nú í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun​. Það var því mjög ánægjulegt að Alþingi skyldi festa í sessi áframhaldandi stuðning við hugverkaiðnað. Slíkur stuðningur skapar nauðsynlegan fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki til að fjárfesta og stækka.

Næsta ríkisstjórn ber ábyrgð á því að viðhalda stöðugri umgjörð og hvötum til nýsköpunar sem styður við aukna verðmætasköpun á Íslandi. Við hvetjum sannarlega til þess og að hún vinni markvisst með iðnaðinum að því að sækja tækifærin. Með aukinni alþjóðlegri samkeppni um mannauð og fjárfestingar er nauðsynlegt að Íslendingar haldi áfram að laða til sín hæfileikafólk og fjárfesta í rannsóknum, þróun og mannauði. Samstarf Samtaka iðnaðarins og og stjórnvalda getur tryggt sérstöðu Íslands sem nýsköpunarlands í fremstu röð.

Höldum áfram!

Hugverkaiðnaður er grein sem byggir á mannauði, fjárfestingu í nýsköpun og drifkrafti frumkvöðla. Með skýrri stefnu næstu ríkisstjórnar um áframhaldandi öfluga umgjörð fyrir nýsköpun getur hugverkaiðnaður orðið burðarás íslensks efnahagslífs. Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að tryggja stöðuga og fyrirsjáanlega umgjörð fyrir nýsköpun og áframhaldandi vöxt hugverkaiðnaðar, sem mun leiða til bættra lífskjara og aukinnar verðmætasköpunar fyrir íslenskt samfélag. Samtakamáttur stjórnvalda, atvinnulífs og frumkvöðla er lykillinn að því að Ísland verði enn frekar þekkt sem hugmyndalandið – land þar sem hugvit og nýsköpun skapa verðmæti og velsæld fyrir alla.

Höfundar sitja í stjórn Samtaka iðnaðarins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×