Innlent

Þessi mættu best og verst í þinginu

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Jódís, Hildur, Diljá og Guðmundur fengju sennilega einhvers konar ástundunarviðurkenningu fyrir síðasta þing ef Alþingi væri framhaldsskóli.
Jódís, Hildur, Diljá og Guðmundur fengju sennilega einhvers konar ástundunarviðurkenningu fyrir síðasta þing ef Alþingi væri framhaldsskóli. Vísir/Vilhelm

Fjórir þingmenn úr þremur flokkum voru með bestu mætinguna í atkvæðagreiðslur nýliðins þings, samkvæmt síðu sem tekið hefur saman ýmsa tölfræði um þingmenn og þingflokka yfir langt skeið.  

Samkvæmt síðunni Þingmenn.is voru Diljá Mist Einarsdóttir og Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokki, Jódís Skúladóttir, VG, og Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólksins, með hundrað prósent mætingu í atkvæðagreiðslur 155. þings, sem lauk 18. nóvember síðastliðinn, og samanstóð af 27 þingfundum frá 10. september.

Þetta skjáskot af vefnum Þingmenn.is sýnir þá tíu þingmenn sem voru með bestu mætinguna í atkvæðagreiðslur á síðasta þingi.

Þar á eftir koma fjórir þingmenn með 99,4 prósenta mætingu hver. Það eru Sjálfstæðismennirnir Birgir Ármannsson og Óli Björn Kárason, VG-liðinn Orri Páll Jóhannsson og Gísli Rafn Ólafsson. Með 98,8 prósent mætingu eru svo Bjarni Benediktsson og Bryndís Haraldsdóttir, Sjálfstæðisflokki. 

Miðflokksmenn báðir á tossalistanum

Á hinum enda mætingarlistans er einn þingmaður sem mætti ekki í neina atkvæðagreiðslu. Það er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Áður hefur verið fjallað um dræma mætingu Sigmundar í þingið, til að mynda þegar þingmaður Pírata sagði hann fínasta sessunaut þar sem hann mætti svo sjaldan. 

Fast á eftir Sigmundi fylgir annar formaður stjórnarandstöðuflokks. Það er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar, en hún er með 0,6 prósent mætingu í atkvæðagreiðslur á síðasta þingi, samkvæmt samantektinni. Næsti maður á eftir er Birgir Þórarinsson, Sjálfstæðisflokki, með 9,3 prósent mætingu í atkvæðagreiðslur. Bergþór Ólason, eini samflokksmaður Sigmundar á þingi, er með 20,4 prósent mætingu í atkvæðagreiðslur, en Þorgjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar er næst á lista með 21 prósents mætingu. 

Þetta skjáskot af vefnum Þingmenn.is sýnir þá tíu þingmenn sem voru með verstu mætinguna í atkvæðagreiðslur á síðasta þingi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×