Skoðun

Stöndum með trans börnum og for­eldrum þeirra!

Birna Guðmundsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir og Ynda Eldborg skrifa

Öll börn eiga að njóta fullra réttinda í samfélaginu óháð því hvernig þau skilgreina sig. Ofbeldi, útskúfun og áreitni í garð barna á aldrei að líðast. Við þurfum samhent þjóðarátak til að uppræta fordóma, og ofbeldi í garð hinsegin fólks, sérstaklega trans fólks í okkar samfélagi. Ísland státar sig af því á alþjóðavettvangi að vera regnbogaparadís. Þó svo að það sé ákveðinn stuðningur fólginn í því að mála regnbogagötur og mæta með fána í Pride göngur þá þarf það jafnframt að vera metnaðarmál almennings og stjórnvalda hverju sinni að ráðast í nauðsynlegar kerfislegar og samfélagslegar breytingar sem bæta líf og tilveru allra. Það á vera pláss fyrir öll börn og ungmenni í okkar samfélagi.

Vinstri græn hafa lagt ríka áherslu á að bæta stöðu trans fólks t.d. með lögum um kynrænt sjálfræði og lögum um atvinnuöryggi trans fólks en mikilvægt er að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið í stjórnartíð Vinstri grænna. Lög um kynrænt sjálfræði eru mikilvæg réttarbót sem við verðum að standa vörð um. Þó svo að reglugerð um sérklefa hafi verið sett fyrr á þessu ári þá er mikilvægt að ganga enn lengra þannig að ákvæði um sérklefa nái lika til skólahúsnæðis, allra opinberra stofnana sem og eldri íþróttamannvirkja. Staðan í dag er óboðleg og það er ekki í lagi að börn séu látin nýta skúringakompur sem skiptiklefa.

Bakslag hefur orðið í réttindabaráttu hinsegin fólks, ekki síst trans fólks undanfarin ár. Það er sorglegt að heyra málflutning stjórnmála fólks og flokka sem vilja afnema lögin um kynrænt sjálfræði og útiloka skilning á málefnum trans fólks úr allri fræðslu og samfélagslegri umræðu. Mikilvægt er því að tryggja fullnægjandi aðgang að kynstaðfestandi meðferð s.s. hormóna blokkerum og kross hormónum fyrir börn og ungmenni. Einnig er mikilvægt að styðja betur við aðstandendur trans barna og ungmenna en nú er gert. Aukin hatursorðræða, áreitni og ofbeldi í gegn trans börnum og ungmennum á ekki að líðast í okkar samfélagi. Mikilvægt er að setja skýran lagaramma utan um hatursorðræðu og hatursglæpi. Grundvallaratriði er að bæta alla þjónustu við trans börn og ungmenni, foreldra þeirra og forsjáraðila. Langir biðlistar hjá transteymi barna og ójafnt aðgengi vegna búsetu er áhyggjuefni.

Stöndum með trans börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra í komandi Alþingiskosningum, kjósum Vinstri græn sem hafa sýnt það í verki að þau láta sig varða málefni allra barna.

Velferð trans barna er í húfi!

Höfundar eru baráttukonur fyrir réttindum og öryggi transbarna og eru í framboði fyrir Vinstri græn í Reykjavíkurkjördæmum Norður og Suður.




Skoðun

Sjá meira


×