Skoðun

Viltu borga 200 þús á mánuði eða 600 þús á mánuði af í­búðinni?

Hildur Þórðardóttir skrifar

Há vaxtaprósenta gerir ekkert nema flytja peninga úr vösum tekjulágra í vasa þeirra tekjuháu. Hún lækkar hvorki verðbólgu né skapar stöðugleika. Í raun kynda háir stýrivexti frekar undir verðbólgu, eins og nóbelsverðlaunahafinn Joseph Stieglitz hefur bent á, sérstaklega þar sem húsnæðisverð er inni í vísitölu neysluverðs. Ráðamenn og Seðlabankastjóri eru hér að níðast á almenningi og fóðra eigin vasa og annarra fjármagnseigenda.

Hvernig stendur á því að fólk á hinum Norðurlöndunum getur keypt sér íbúð og borgað af henni án þess að þurfa lepja dauðann úr skel, ólíkt okkur hér á Íslandi? Í Svíþjóð og Danmörku er afborgun af meðalstórri 3. herbergja íbúð, miðað við 20% útborgun og rest á láni til 40 ára, aðeins um 200.000 íslenskar krónur á mánuði. Hér er afborgun af sambærilegu reikningsdæmi um 600.000 krónur á mánuði. Á Norðurlöndunum sér fólk hvernig höfuðstóllinn lækkar. Hér hreyfist höfuðstóllinn varla fyrr en eftir 20 ár og við borgum íbúðina tífallt.

Málið er einfalt. Hvort viltu borga 600 þúsund eða 200 þúsund á mánuði? Ef þú vilt bara borga 200 þúsund þá þarftu að kjósa Lýðræðisflokkinn.

Lýðræðisflokkurinn mun breyta þessu. Baldur Borgþórsson er 1. maður á lista Lýðræðisflokksins í Reykjavík norður. Hann talar fyrir því að setja í lög á Seðlabankann sem banna hærri stýrivexti en 4%. Þetta myndi sjálfkrafa gera lánakjör hérlendis sambærileg þeim á hinum Norðurlöndunum.

Auk þess er það stefnumál Lýðræðisflokksins að taka húsnæðisverð út úr vísitölu neysluverðs, enda hvergi í siðmenntuðum löndum sem það er gert. Auk þess má taka áfengi og tóbak úr sömu vísitölu, þar sem allar aðgerðir stjórnvalda til að stemma stigu við neyslu þess, leiða beint til aukinnar verðbólgu.

Það er löngu búið að lækka vexti í öðrum Vesturlöndum en af því hér þurfa fjármagnseigendur aðeins að bæta í yfirfulla sjóðina hefur það ekki verið gert hér á landi.

Há vaxtakjör og ófyrirsjáanleiki við íbúðakaup gera það vonlaust fyrir venjulegt fólk að kaupa sér íbúð eða halda í við afborganir. Þetta er einungis til að breikka enn frekar bilið milli ríkra og fátækra.

Þeir sem vilja sjá breytingar verða að kjósa eitthvað annað en þeir hafa alltaf gert.

Ef þú býrð í Reykjavík norður hvet ég þig eindregið til að nýta atkvæðisrétt þinn og kjósa Baldur á þing.

Höfundur er rithöfundur og skipar 2. sæti Lýðræðisflokksins í Reykjavík Norður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×