Skoðun

Frelsi alla leið – dánarað­stoð

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Frá því að ég var kosin á Alþingi haustið 2016 hef ég tekið upp málefnið dánaraðstoð á þinginu og lagt áherslu á mikilvægi þess að skapa frelsi í lífslokum. Ég hef lagt fram fyrirspurnir, þingsályktanir og skýrslubeiðnir um málefnið. Félagið Lífsvirðing hefur verið ötult í að halda uppi umræðu í samfélaginu um þetta mikilvæga, en viðkvæma mál, og er ég stolt af því að hafa getað lagt mitt lóð á vogarskálarnar inni á þinginu.

Vaxandi stuðningur við dánaraðstoð

Allar kannanir sýna að stuðningur við dánaraðstoð hefur aukist til muna á síðustu árum, bæði meðal heilbrigðisstarfsmanna og almennings. Í nýlegri könnun kom fram að 56% lækna, 86% hjúkrunarfræðinga og 81% sjúkraliða voru hlynnt dánaraðstoð (alfarið, mjög eða frekar). Þessar niðurstöður sýna að stuðningur heilbrigðisstarfsfólks hefur aukist verulega á skömmum tíma. Þá sýndi sama könnun að 75,6% svarenda úr almenningi voru alfarið, mjög eða frekar hlynntir dánaraðstoð.

Vorið 2023 samþykkti Alþingi beiðni mína um að heilbrigðisráðherra skyldi gera skoðanakönnun um viðhorf heilbrigðisstarfsfólks, samtaka sjúklinga og almennings til dánaraðstoðar. Þessar kannanir hafa verið mikilvægur liður í að auka vitund og skapa samstöðu um málefnið.

Dánaraðstoð: Frelsi í lífslokum

Dánaraðstoð snýst ekki um að fleiri deyi heldur um að færri kveljist. Hún er fyrst og fremst spurning um frelsi einstaklingsins til að velja og hafna þeim læknismeðferðum sem í boði eru. Dánaraðstoð er viðkvæmt málefni sem snertir grundvallarspurningar um líf, dauða og mannréttindi. Hún kallar á vandlega yfirvegun, samkennd og virðingu fyrir ólíkum sjónarmiðum.

Sem þjóð verðum við að taka umræðu um dánaraðstoð af festu og sanngirni. Þeir sem standa frammi fyrir ólæknandi sjúkdómum og miklum þjáningum ættu að hafa rétt til að velja þann farveg sem þeir kjósa í lífslokum. Í löndum eins og Hollandi, þar sem dánaraðstoð hefur verið leyfð um árabil, fer aðstoðin fram eftir skýru og vönduðu ferli. Umsóknir eru metnar af tveimur læknum, og aðstoðin er aðeins veitt þegar þjáningar eru óbærilegar og engin von um lækningu er til staðar.

Samhljómur í umræðunni

Afstaða heilbrigðisstarfsfólks, sem væntanlega myndi veita þessa þjónustu, er lykilatriði. Það er jafnframt mikilvægt að tryggja að enginn verði skyldaður til að taka þátt í dánaraðstoð gegn eigin vilja. Virðing fyrir fjölbreyttum skoðunum og trú er óaðskiljanlegur hluti af umræðu og lagasetningu um þetta viðkvæma mál.

Framtíðarsýn: Að tryggja rétt einstaklinga

Nú liggur fyrir þinginu ályktun um að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa og leggja fram frumvarp til laga sem heimilar dánaraðstoð. Ég mun, fái ég til þess áframhaldandi umboð, vinna að þessu mikilvæga máli með sama eldmóði og áður. Þetta snýst um frelsi, virðingu og mannúð – alla leið.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokks.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×