Skoðun

Af­sláttur af mann­réttindum

Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Þegar ég flutti heim frá Englandi 2020 og fór að kynna mér flokkana og málefnin þeirra sá ég að það þýddi ekki að lesa bara það sem sett var fram í áherslupunktum. Ef ég hefði gert það þá hefði ég getað lokað augunum í kjörklefanum og sett x-ið einhvers staðar. Málið er nefnilega það að allir flokkarnir vilja góðan efnahag, sterkara heilbrigðiskerfi og betra menntakerfi. Það þarf að fara á dýptina og það þarf að skoða hvernig flokkarnir hafa hugsað sér að ná sínum markmiðum.

Samhliða þeirri vinnu er gott að velta fyrir sér sínum eigin grunngildum. Málið er nefnilega það að það er ólíklegt að maður finni flokk þar sem maður er sammála í einu og öllu. Maður gæti þurft að gera einhverjar málamiðlanir, eða stofna enn einn flokkinn.

Þeim sem finnst nóg af flokkum og telja sig geta átt samleið með einhverjum af þeim sem fyrir eru er því holt að velta því fyrir sér hvað það er sem þeir eru tilbúnir að gera málamiðlanir með. Eru það atriði er varða stóriðju, samgöngur, alþjóðasamstarf eða eitthvað annað?

Fyrir mér var þetta einfalt, ég fann mjög fljótt að ég átti samleið með Viðreisn. Ég sá líka að þar þurfti ég ekki að gefa neinn afslátt á mín grunngildi og þá meina ég að ég þurfti ekki að gefa afslátt á mannréttindi, jafnrétti eða réttlæti. Heilsa fólks andleg- og líkamleg er sett í forgrunn og manneskjan sjálf. Mér fannst því auðvelt að hengja nafnið mitt við Viðreisn og hef síðan þá verið stolt Viðreisnarkona og fullviss að flokkurinn setur réttindi fólks og frelsi í fyrirrúm.

Í mínum huga get ég ekki gefið afslátt á mannréttindi.

Hefur þú spáð í því hvar þú gefur afslátt með x-inu þínu?

Höfundur skipar annað sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×