Handbolti

Sandra í lands­liðinu þremur mánuðum eftir barns­burð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sandra Erlingsdóttir eignaðist barn um miðjan júlí.
Sandra Erlingsdóttir eignaðist barn um miðjan júlí. vísir/hulda margrét

Einn nýliði er í hópi íslenska kvennalandsliðsins sem Arnar Pétursson valdi fyrir tvo vináttuleiki gegn Póllandi. Þá snýr Rut Jónsdóttir aftur í landsliðið eftir nokkra fjarveru og Sandra Erlingsdóttir er valin aðeins þremur mánuðum eftir að hún eignaðist barn.

Eins og greint var frá á Vísi fyrr í vikunni var Dana Björg Guðmundsdóttir, 22 ára vinstri hornamaður Volda í Noregi, valin í landsliðið í fyrsta sinn.

Dana hefur alla tíð búið í Noregi en á íslenska foreldra. Hún hefur spilað vel og skorað grimmt fyrir Volda í norsku B-deildinni. Í fyrstu sex deildarleikjunum hefur Dana skorað 51 mark, eða 8,5 mörk að meðaltali í leik.

Sandra eignaðist sitt fyrsta barn 15. júlí en er komin í landsliðið þremur mánuðum seinna. Hún leikur með TuS Metzingen í Þýskalandi.

Rut kemur aftur inn í landsliðið og er einn þriggja hægri skytta í hópnum ásamt Díönu Dögg Magnúsdóttur og Theu Imani Sturludóttur. Rut gekk í raðir Hauka í sumar en hún var í barneignarleyfi á síðasta tímabili.

Leikirnir gegn Pólverjum eru liður í undirbúningi Íslendinga fyrir EM sem hefst 28. nóvember. Fyrri leikur Íslands og Póllands fer fram á heimavelli Fram, Lambhagahöllinni, föstudaginn 25. október. Daginn eftir mætast liðin á Selfossi.

Íslenski hópurinn

Markverðir:

  • Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus Håndbold (63 leikir/2 mörk)
  • Hafdís Renötudóttir, Valur (62/4)

Aðrir leikmenn:

  • Andrea Jakobsen, HSG Blomberg-Lippe (56/89)
  • Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (28/6)
  • Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (2/3)
  • Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (56/74)
  • Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (16/45)
  • Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (23/49)
  • Elísa Elíasdóttir, Valur (17/15)
  • Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, Kristianstad HK (19/11)
  • Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (4/10)
  • Katrín Tinna Jensdóttir, ÍR (21/7)

  • Perla Rut Albertsdóttir, Selfoss (51/109)
  • Rut Jónsdóttir, Haukar (117/244)
  • Steinunn Björnsdóttir, Fram (51/72)
  • Sunna Jónsdóttir, ÍBV (94/66)
  • Thea Imani Sturludóttir, Valur (82/178)
  • Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (140/405)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×