Rafíþróttir

Du­sty sigraði fjand­vina­slaginn við Ár­mann

Þórarinn Þórarinsson skrifar
Dusty og Ármann áttust við í 6. umferð Ljósleiðaradeildarinnar á þriðjudagskvöld eftir að hafa hitað uop með smá skeytasendingum fyrir leik.
Dusty og Ármann áttust við í 6. umferð Ljósleiðaradeildarinnar á þriðjudagskvöld eftir að hafa hitað uop með smá skeytasendingum fyrir leik.

Stálin stinn mættust þegar fjand­vina­liðin Du­sty og Ár­mann tókust á í eina leik 6. um­ferðar Ljós­leiðara­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke í gær­kvöld.

Sjötta umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst á mánudag þegar Þórsarar lögðu Rafík 2-0. Baráttan hélt síðan áfram á þriðjudagskvöld með einum leik þar sem Dusty og Ármann tókust á.

Talsverð spenna var í kringum viðureign liðanna enda hafa bæði barist í efri lögum deildarinnar og eins og kom fram í beinu útsendingunni í gær hefur löngum verið grunnt á því góða milli liðanna og einhver skeyti gengu á milli liðanna fyrir leik.

Þegar upp var staðið þurftu Ármenningar þó að kyngja 2-0 tapi og Dusty þar með aftur komið á topp deildarinnar með Þórsara á hælunum en bæði lið eru með 12 stig eftir leiki sína í umferðinni.

Ármann heldur enn 3. sætinu, í það minnsta fram á fimmtudagskvöld þegar umferðin klárast með leikjum ÍA og Hattar, botnslag Kano og Venus og leik Sögu og Veca, sem verður lýsti í beinni, en með sigri getur Veca rutt Ármanni úr þriðja sætinu.

Staðan í Ljósleiðaradeildinni þegar þrír leikir eru eftir í 6. umferð.

Tengdar fréttir

Du­sty aftur á toppinn eftir 4. um­ferð

Fjórðu um­­­­­­­­­ferð Ljós­­­­­leiðara­­­­­deildarinnar í Coun­ter Stri­ke lauk í gær­­­­kvöld með þremur leikjum þar sem Du­sty sigraði Raf­ík 2-0, Saga lagði Kano 2-1 og Þór hafði betur gegn ÍA 2-0.






×