Skoðun

Tekst Sam­fylkingunni að virkja lýð­ræðið - Tekst henni að færa kjós­endum aukið vald

Birgir Dýrfjörð skrifar

Sá viðsnúningur hefur nú orðið hjá Samfylkingunni, að í skoðanakönnun sögðust 30% kjósenda ætla að kjósa Samfylkinguna. Í ræðu Kristrúnar Frostadóttur á fundi flokksstjórnar á Laugabakka sagði hún flokkinn hafa skyldur við það fólk.

Hún sagði: „Það er mikið í húfi. Fólkið í landinu er að horfa til okkar. Væntingarnar eru miklar, væntingar sem við viljum og verðum að standa undir, kæru félagar. Við megum ekki bregðast þessu fólki núna. Þjóðin gerir kröfu um árangur. Höldum áfram, sameinuð, fyrir fólkið í landinu!“

Tillaga um aukið lýðræði í Samfylkingunni

Formaður, varaformaður og fleiri stjórnarmenn lögðu síðan fram tillögu og greinargerð á fundinum á Laugabakka. Þar segir orðrétt: „lagt er til að heimila opið prófkjör, þar sem allir íbúar í viðkomandi kjördæmi, sem munu geta kosið í þeim kosningum sem framboðslisti er ætlaður, geti greitt atkvæði.“

Þessi tillaga sýnir víðsýni og kjark stjórnar Samfylkingarinnar. Hún er afturhvarf til þess tíma þegar samfylkingin virkjaði lýðræðið og fékk 20 þingmenn. Hún náði þó ekki fram að ganga á fundinum.

Helstu rökin gegn henni er ótti um, að með samþykkt hennar geti andstæðingar flokksins unnið skemmdarverk. Þeir geti ráðið of miklu um frambjóðendur hans.

Talsmenn þessa sjónarmiðs töldu því rangt að styðja tillögu Kristrúnar og stjórnar fokksins, þeir töldu hana of hættulega.

100% hættulaust prófkjör

Til að eyða skiljanlegum ótta þessara flokksmanna er til einföld og örugg aðferð.

Hún er sú, að kjördæmaráð eða fulltrúaráð megi skipa uppstillingarnefnd fyrir sitt kjördæmi.

Sú nefnd á að tilnefna flokksfólk á framboðslista, þó aldrei færri en þingmannatölu viðkomandi kjördæmis. Nefndin á einnig að upplýsa, að kjósa þurfi tiltekinn lágmarksfjölda frambjóðenda.

Um þann lista uppstillingarnefndar yrði svo opið kjósendaval (prófkjör).

Þó allur sjálfstæðisflokkurinn og fleiri kæmu í það prófkjör, þá gæti það fólk ekkert annað gert en raða á framboðslista því fólki, sem uppstillingarnefndir kjördæmaráða hafa valið sem vel hæfa frambjóðendur. Þar með þarf enginn að óttast utanaðkomandi skemmdarverk.

Það er styrkur stjórnmálaflokka, að sýna í verki að þeir þori að treysta fólki.

Besta aðferðin til að öðlast þann styrk er, að flokkar opni faðminn og sýni í verki, - að þeir treysti kjósendum, - að þeir þori að veita þeim aðild að þeirri ákvörðun, að raða fólki á framboðslista

- að þeir þori að veita fólki vald til að hafa áhrif í flokknum sem það ætlar að kjósa.

Nái tillaga formanns Samfylkingarinnar og stjórnar hennar um opið prófkjör fram að ganga, þá væri komin svipuð staða og var þegar Samfylkingin fékk 20 þingmenn.

Í prédikaranum segir:

„Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir sólinni hefur sinn tíma,“

„Að rífa niður hefur sinn tíma , að byggja upp hefur sinn tíma.“

Nú er tími til að byggja upp. Ekki að rífa niður. Nú er tími jafnaðarflokka að safna fólki í öflugar umbótahreyfingar undir merkjum lýðræðis og jafnaðarstefnu.

„Fólkið horfir til okkar við megum ekki bregðast því núna.“ Sagði formaður Samfylkingarinnar.

Höfundur er jafnaðarmaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×