Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Dáleiðsluskóli Íslands 13. september 2024 11:32 Þær Hafdís Ólafsdóttir (t.v.) og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir eru báðar klínískir dáleiðendur og sérfræðingar í Hugrænni endurforritun frá Dáleiðsluskóla Íslands. Þær eru sammála um að Hugræn endurforritun geti hjálpað mikið við úrvinnslu ýmis konar áfalla. Myndir/Anton Brink. Hafdís Ólafsdóttir og Margrét Ýrr Sigurgeirsdóttir eru báðar klínískir dáleiðendur og sérfræðingar í Hugrænni endurforritun frá Dáleiðsluskóla Íslands.
Aðspurðar um menntun og fyrri störf sögðu þær: Margrét Ýrr: „Ég er hjúkrunarfræðingur og starfa sem hjúkrunarstjóri á heilsugæslu HSU í Rangárþingi og einnig í hlutastarfi í Sigurhæðum á Selfossi þar sem ég vinn með konum sem eru þolendur ofbeldis. Ég hef alltaf haft áhuga á að bæta heilsu fólks og hef lært margt á því sviði fyrir utan hjúkrunarfræðina, þar á meðal sálgæslu, jógakennaranám og svo fullt nám hjá Dáleiðsluskóla Íslands.“ Hafdís: „Auk þess að vera klínískur dáleiðandi er ég með kennararéttindi í grunn- og framhaldsskólum en hef starfað við hótelstjórnun á Hótel Eddu og sem gæðastjóri Icelandair hótela, (nú Berjaya hótelum) í samtals fjóra áratugi. Mér finnst mjög gefandi að sjá fólk vaxa og dafna og njóta sín betur á allan hátt og það var hvatning fyrir mig til að efla mig enn betur til að geta aðstoðað aðra. Sem stjórnandi hef ég alltaf haft áhuga á að sjá hvern einstakling vaxa og dafna í kærleiksríku umhverfi. Í gegnum tíðina hef ég sótt fjölda námskeiða sem snúa að bættri líðan starfsfólks, valdeflingu, starfsánægju og að finna til sín í því starfi er viðkomandi sinnir.“ „Í Hugrænni endurforritun er hægt að komast að rót vandans og uppræta hana, losna við fastar tilfinningar af minningum og breyta neikvæðri mótun sem við höfum fengið. Það fylgir því mikið frelsi að losna við þessa vanlíðan. Hugræn endurforritun er öflugasta verkfærið sem ég hef í minni verkfærakistu,“ segir Hafdís Ólafsdóttir. Af hverju ákvaðst þú að læra meðferðardáleiðslu? Hafdís: „Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á andlegri líðan fólks. Þegar kom að starfslokum hjá mér vildi ég geta haldið áfram að aðstoða fólk við að gera jákvæðar breytingar á lífi sínu. Við förum fæst í gegnum lífið án einhverra áfalla og ég vissi að með meðferðardáleiðslu gæti ég eytt afleiðingum áfalla hjá skjólstæðingum mínum. Áföll geta haft langvarandi áhrif og truflað okkur í daglegu lífi. Í Hugrænni endurforritun er hægt að komast að rót vandans og uppræta hana, losna við fastar tilfinningar af minningum og breyta neikvæðri mótun sem við höfum fengið. Það fylgir því mikið frelsi að losna við þessa vanlíðan. Hugræn endurforritun er öflugasta verkfærið sem ég hef í minni verkfærakistu.“ Margrét Ýrr: „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á andlegri og líkamlegri heilsu. Áföll geta haft langvarandi áhrif á heilsu fólks og afleiðingarnar verið kvíði og þunglyndi. Stundum duga hvorki lyfja- né viðtalsmeðferðir. Áhugi minn á dáleiðslumeðferð vaknaði fyrst þegar læknir sem ég var að vinna með sagðist oft benda fólki í þessum sporum á dáleiðslumeðferð og að hún gæfi mjög góða raun.“ „Áhugi minn á dáleiðslumeðferð vaknaði fyrst þegar læknir sem ég var að vinna með sagðist oft benda fólki í þessum sporum á dáleiðslumeðferð og að hún gæfi mjög góða raun,“ segir Margrét Ýrr. Hverju breytti námið fyrir ykkur sjálfar? Margrét Ýrr: „Ég fór sjálf í dáleiðslu og Hugræna endurforritun og fann eftir það gríðarlegan mun á andlegri og líkamlegri líðan. Meðal annars hurfu verkir í baki sem höfðu angrað mig lengi. Í meðferðinni var líka unnið með tengslarof í æsku sem ég veit að hafa alltaf haft áhrif á mig, þótt ég hafi ekki endilega viljað viðurkenna það. Hugræn endurforritun er frábært verkfæri og auðveld leið til að vinna að bættri líðan og árangurinn fyrir mig var ótrúlega mikill.“ Hafdís: „Námið gaf mér öflug verkfæri sem ég get notað bæði fyrir mig og aðra. Til dæmis slasaðist ég illa á fæti og fékk ekki rétta greiningu á alvarleika slyssins. Þetta varð til þess að þegar rétt greining kom loksins var ekkert hægt að gera. Þetta olli mér miklum verkjum og rangri líkamsbeitingu sem hafði afleiðingar. Með sjálfsdáleiðslu og réttum æfingum hefur mér tekist að losna alveg við verkjalyf. Með Hugrænni endurforritun öðlaðist ég ótrúlega mikla hugarró í þessum aðstæðum og um leið betri líðan.“ Hefur þú náð jafn góðum árangri fyrir aðra og þú upplifir sjálf ? Margrét Ýrr: „Já, tvímælalaust. Þótt fólk átti sig sjaldnast á því hvers vegna því líður illa er hægt að finna rót vandans með dáleiðslumeðferð. Það eru oft áföll í bernsku og æsku sem valda kvíða og þunglyndi á öllum aldri. Með því að finna og uppræta rót vandans hverfur þessi vanlíðan. Hafdís: „Já, svo sannarlega. Það er svo gefandi að sjá fólk losna undan þessum tilfinningum sem það hefur verið að burðast með jafnvel árum og áratugum saman í undirvitundinni. Sumir lýsa þessu eins og að öðlast frelsi, jafnvel nýtt líf og hugarró. Það er ótrúlega dýrmætt að geta kennt fólki þessa sjálfsvinnu og fært því verkfæri til að bæta daglega líðan og lífsgæði. Við gerum okkur sjaldnast grein fyrir því hversu öflugur hugur okkar er.“ Hverjir gætu nýtt sér þessa meðferð? Margrét: „Í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur vann ég í 20 ár á hjúkrunarheimili og kynntist þar fjölda fólks sem flest hafði lent í áföllum á lífsleiðinni sem höfðu haft mikil áhrif á líkamlega og andlega heilsu þeirra. Úrvinnsla áfalla er afar mikilvæg og aldrei of seint að fara í hana. Í starfi mínu í Sigurhæðum vinn ég með konum sem orðið hafa fyrir ofbeldi og oft eru þær með mörg áföll að baki. Nú get ég boðið þeim dáleiðslumeðferð og Hugræna endurforritun til viðbótar við hefðbundin stuðningsviðtöl. Ég hika ekki við að benda fólki á þessa meðferð í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur og tel að innan heilbrigðisgeirans hljóti meðferðin sífellt meiri viðurkenningu enda frábær leið til bata í svo mörgum tilfellum.“ Hafdís: „Allir sem vilja bæta lífsgæði sín geta nýtt sér þessa meðferð. Margir eru ekki meðvitaðir um hvað það er sem er að plaga þá. Í dáleiðslunni koma stundum upp minningar með sárum tilfinningum sem viðkomandi átti alls ekki vona á að hefðu verið að angra hann. Mikið vildi ég sjá að dáleiðslumeðferð og Hugræn endurforritun væri eitt af úrræðum sem væri í boði á öllum meðferðarstofnunum í samfélaginu. Sérstaklega fyrir unga fólkið okkar sem villst hefur af leið í lífinu. Það er næsta víst að öll þessi ungmenni hafa með einum eða öðrum hætti lent í allskonar áföllum og jafnvel vanrækslu. Ég er sannfærð um að margir kæmu aftur út í samfélagið með betri líðan ef þessi meðferð stæði þeim til boða og ættu þá betra með að fóta sig í samfélaginu. Það er aldrei of seint að vinna úr áföllum en er afar mikilvægt. Við þurfum að sýna okkur mildi og kærleika í allri andlegri vinnu. Hugarró er þín besta gjöf.“ Næsta grunnnámskeið Dáleiðsluskóla Íslands hefst 7. febrúar, 2025 Hægt er að bóka sig á daleidsla.is Til að finna meðferðaraðilla í klínískri dáleiðslu og Hugrænni endurforritun (meðal annars þær Hafdísi og Margréti Ýrr) ferðu á heimasíðu Félags Klínískra dáleiðenda.
Heilsa Mest lesið Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Bíó og sjónvarp Óhrædd við að fara sínar eigin leiðir Lífið Vissu hvorki verðið á strætómiða né bjór Lífið Kappleikar: Skörp orðaskipti og skeytasendingar Lífið Frægar í fantaformi Lífið Svar Bents við hatursorðræðu gegn útlendingum Lífið „Mig langar að prófa nýja villtari hluti en konan ekki“ Lífið Barry Keoghan leikur Bítil Bíó og sjónvarp Inga Sæland vill komast í fjármálaráðuneytið Lífið Hefndi sín með því að missa meydóminn Lífið Fleiri fréttir Gleði á forsýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á Vaiana 2 Ritdómur Lestrarklefans: Eins konar dans Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Magnesíum kemur í mörgum mismunandi formum Jólaboð sem gleður og yljar á aðventunni Pantaðu sól og gleði með Úrval Útsýn Ritdómur: Gáskafull þeysireið Friðsemdar Ostaboxið frá EasyCheese hefur slegið í gegn Nýr og glæsilegur uppskriftavefur frá Nóa Síríus Ritdómur: Glæpasaga hlaðin leyndarmálum og rómans Ritdómur: Ekkert eins ljúffengt og minningin Þriggja daga veisla með Skálmöld í Hörpu Hrá upplifun í einstakri náttúruperlu Hlúa að heilsunni í infrarauðum hita í skammdeginu Sjá meira