Skoðun

Endurvekjum skikkjuna strax!

Samúel Karl Ólason skrifar

Ég er oftar en ekki reiður yfir einhverju og yfirleitt einhverju smávægilegu. Eitt mitt minnisstæðasta og mögulega alvarlegasta bræðiskast átti sér þó stað niður í miðbæ, seint að kvöldi og fyrir all mörgum árum. Þar sá ég nefnilega mann í einskonar skikkju, eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég varð fjúkandi reiður, út af því að þarna var þessi heimsfrægi tónlistarmaður bara að spjalla við vin sinn í skikkju og enginn sagði neitt!

Hér er best að taka fram að ég var alls ekki reiður út í hann. Hann leit stórkostlega út. Ég var reiður út í þetta skítasamfélag okkar, því ég tel mig fullvissan um að ég kæmist aldrei upp með það að mæta í bæinn í skikkju/herðaslá, eflaust stórglæsilegur, og vera ekki litinn hornauga eða áreittur af einhverjum fávitum sem benda á mig og spyrja hvort ég ætli að reyna að sjúga blóðið úr þeim.

Ef Jónsi í Sigurrós (held ég, ástandið á mér var ekkert frábært þarna) má vera í skikkju niðri í bæ, þá vil ég fá að gera það líka.

Ég hef lengi ætlað mér að skrifa þessa grein en setið á mér af ótta við viðbrögð samfélagsins. Það er ekki auðvelt að stíga fram sem skikkjuunnandi en ég tel okkur vera mun fleiri en fólk áttar sig á. Skikkjur eru nefnilega klikkaðar og það sama má segja um fínar herðaslár/kápur en þrátt fyrir það þurfa ég og aðrir eins og ég að læðast um í skuggasundum samfélagsins.

Skikkjur eru einhverjar heimsins bestu flíkur, á eftir kvart- og stuttbuxum, og ég kalla eftir því við Íslendingar girðum okkur loksins í brók og gerum skikkjur aftur samfélagslega gjaldgengar í daglegu amstri.

Er kaldur vindur úti? Skikkja bjargar því. Er rigning eða snjókoma? Skikkjan kemur til bjargar. Þarftu að fela þig fyrir drýslum og austurmönnum? Sumar skikkjur geta reddað því. Skikkjur geta hentað við nánast hvaða tilefni sem er, enda voru þær vinsæll klæðnaður í hundruð ára.

Með einu litlu, en samt risastóru, samfélagslegu átaki, getum við Íslendingar stigið fyrstu skrefin í þessari mikilvægu og heimslægu baráttu. Kynnum skikkjur/herðaslár betur fyrir börnunum okkar og skilum skikkjuskömminni þangað sem hún á heima. Saman getum við dregið skikkjur aftur í dagsljósið, breitt þær yfir herðar okkar og bætt samfélagið til muna!

Höfundur er blaðamaður og stoltur unnandi skikkja. Ég á samt enga almennilega skikkju enn.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×