Skoðun

Villir á sér heimildir

Jón Steinar Gunnlaugsson skrifar

Katrín Jakobsdóttir hefur látið af starfi sem forsætisráðherra og formaður Vinstri Grænna og boðið sig fram í embætti forseta sem kjósa skal næsta laugardag, 1. júní.

Katrín ber auðvitað fulla ábyrgð á verkum þeirrar ríkisstjórnar sem hún stýrði og þá kannski sérstaklega eigin verkum og ráðherranna úr hennar eigin flokki.

Katrín hefur á stjórnmálaferli sínum verið einn harðasti alræðissinni í landinu og hefur það reglulega komið fram í pólitísku starfi hennar undanfarin ár og áratugi. Meðal þeirra afreka sem hún hefur drýgt eða átt beinan þátt í að drýgja eru eftirtalin:

Hún hefur verið andvíg öllum einkarekstri í landinu. Sérstaklega hefur borið á andúð hennar á einkarekstri í heilbrigðiskerfinu. Þetta hefur leitt til mun hærri kostnaðar fyrir skattgreiðendur en ella hefði verið.

Hún hefur tekið þátt í andúð á náttúruvænum orkuvirkjunum. Hefur aðferðin þá verið sú að láta margmennar nefndir umhverfissinna fjalla um ákvarðanir um virkjanir og tefja þær. Hefur ekki verið ráðist í virkjanir um margra ára skeið. T.d. hefur ekki verið ráðist í að reisa Hvammsvirkjun í Þjórsá þó að fyrir hafi legið að í þá virkjun hafi mátt ráðast fyrir mörgum árum. Nú er svo komið að framleiða þarf raforku með olíu víða í landinu með þeim skaðlegu áhrifum sem slíkt hefur haft, þegar haft er í huga að einna verðmætustu auðlindir þjóðarinnar eru fólgnar í virkjunum vatnsorku og jarðhita.

Hún greiddi á Alþingi atkvæði með aðförinni að Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra eftir hrunið 2008. Sú aðför mistókst með öllu en verður þjóðinni til ævarandi skammar.

Hún telur að leyfa eigi fóstureyðingar alveg fram að fæðingu barna.

Hún tók þátt í fyrirvaralausri aðför að hvalveiðum við landið. Beindist aðförin eingöngu að einu fyrirtæki sem hafði lagt stund á þessar veiðar. Liggur ljóst fyrir að þessi aðför mun leiða til bótagreiðslna úr ríkissjóði sem talið er að muni nema einhverjum milljörðum króna.

Hún vill ekki að heimiluð verði heimiluð smásala á áfengi í matvöruverslunum.

Fleiri mál má sjálfsagt nefna þar sem afstaða hennar byggist á alræðishyggju á borð við þá sem ræður í ríkjum sem sósíalistar ráða í heiminum.

Líklegt er að hún kunni sem forseti að beita neitunarvaldi á lagasetningu í þágu nefndra verkefna gefist henni tækifæri til.

Þegar kjósendur gera upp á milli frambjóðenda í kosningu forseta um næstu helgi verður ekki hjá því komist að leggja mat á fortíð þeirra því ekki er unnt að gera ráð fyrir að þeir muni umbreyta persónu sinni og skoðunum nái þeir kjöri.

Í skoðanakönnunum að undanförnu hefur komið fram að kjósendur og stuðningsmenn Sjálfstæðismanna muni verða stærsti stuðningshópur þessa frambjóðanda. Fyrir liggur að nokkrir áhrifamestu forystumenn flokksins styðja hana. Virðist m.a. Morgunblaðið gera það þótt með óbeinum hætti sé.

Ástæða er til að vekja athygli þjóðarinnar á þessum undarlegu kringumstæðum.

Jón Steinar Gunnlaugsson er lögmaður




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×