Skoðun

Reykja­víkur­borg svíkur í­búa Laugar­dals

Grétar Már Axelsson skrifar

Reykjavíkurborg hyggst ganga á bak eigin loforða um að framtíðaruppbygging skólastarfs í Laugardal verði á grundvelli farsælu skólanna okkar og óbreyttum hverfisbrag. Þegar borgaryfirvöld ákváðu á haustmánuðum 2022 að ganga í takt með íbúum hverfisins fögnuðu fulltrúar meirihlutans eftir „þverpólitískt samráð við hagaðila, stjórnendur, starfsmenn, foreldra og börn“. Í kjölfarið hafa borgaryfirvöld dregið íbúa hverfisins á asnaeyrum í tæp tvö ár á meðan þeir biðu eftir framgangi mála. Ítrekuðum óskum um upplýsingar varðandi stöðu og þróun mála var mætt með ærandi þögn.

Svik borgarinnar við íbúa Laugardals og starfsmenn skóla hverfisins voru opinberuð á fundi Skóla- og frístundaráðs (SFR) mánudaginn 13. maí þegar ráðið ákvað að falla frá fyrri ákvörðun og snúa sér að sviðsmynd sem hverfið hafnaði þegar rúmlega 1.000 manns undirrituðu áskorunina „Stöndum vörð um skólana í Dalnum“. Fyrirvaralaus u-beygja borgarinnar er ísköld gusa og kemur þvert ofan á niðurstöðu alls samráðs sem átt hefur sér stað. Það er von að fólk spyrji sig: má þetta bara?

Borgin hefur vanhirt að viðhalda húsnæði skólanna um áratuga skeið. Stefna sem er algjörlega gjaldþrota. Börnin okkar og starfsmenn skólanna þurfa að sækja nám og vinnu í heilsuspillandi húsnæði. Svör um endurbætur og viðgerðir eru þokukennd og óáþreifanleg. Það er hægt að gera svo margfalt betur.

Skýrslan sem lögð er til grundvallar svikamyllu borgarinnar vekur upp fleiri spurningar en svör og sýnir að ekkert hefur verið gert til að undirbúa og hefja framkvæmdir við stækkun og viðhald skólanna. Borgaryfirvöld ætluðu augljóslega aldrei að standa við þessa pólitísku ákvörðun og opinbera svikin með þessari skýrslu. Málið er rekið aftur um tvö ár og endurnýjað samtal boðað eins og að það sé eðlileg málsmeðferð eða framkoma við kjósendur, íbúa og starfsmenn í hverfinu. Rök um breyttar forsendur vegna viðhaldsþarfar og þjóðarhallar halda engu vatni. Í skýrslunni er ekki horft á stóru myndina og eftir stendur æpandi skortur á heildstæðri áætlun um framkvæmdir, forgangsröðun, tímalínu og upplýsingar um það hvar skóli barnanna okkar fær aðsetur þegar loksins verður ráðist í bráðnauðsynlegar endurbætur.

Það er morgunljóst að borgaryfirvöld ætluðu aldrei að framkvæma neitt af því sem ákveðið hafði verið, ekkert hefur verið gert til að undirbúa framkvæmdir. Borgaryfirvöld eru grímulaust að snúa baki við óskum íbúanna og henda öllu samráði út í veður og vind. Svikin eru stór og vonbrigðin eru mikil. Samtal borgarinnar við íbúa Laugardals er brotið, vantraustið verðskuldað og vanvirðing borgaryfirvalda við hverfið áþreifanleg.

Höfundur er gjaldkeri foreldrafélags Laugarnesskóla og fulltrúi foreldrafélaga í íbúaráði Laugardals.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×