Rafíþróttir

Vara­þing­maður Við­reisnar á Stórmeistaramótinu í Counter-Strike

Snorri Már Vagnsson skrifar
Rafn tók þátt á Stórmeistaramótinu í Counter-Strike. Leikurinn er einn sá vinsælasti í heiminum.
Rafn tók þátt á Stórmeistaramótinu í Counter-Strike. Leikurinn er einn sá vinsælasti í heiminum.

Rafn Helgason tók þingsæti sem varamaður Viðreisnar þann 18. mars síðastliðinn í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur. Rafn er sömuleiðis þekktur sem „Sterling“ í netheimum þar sem hann keppir í leiknum Counter-Strike.

Rafn spilaði eina viðureign í íslenska Stórmeistaramótinu í Counter-Strike sem er í gangi þessa dagana. Rafn „Sterling“ spilaði með liðinu GooDCompany sem spilaði þrjár viðureignir á mótinu en sigraði enga. Rafn lék gegn lið NOCCO Dusty, en Dusty hafnaði í öðru sæti deildarkeppninnar og eru eitt af sterkustu liðum landsins.  Náði hann þá að fella andstæðinga 23 sinnum í leiknum og gerði 60 skaða að meðaltali í lotu.

Þrátt fyrir að ná ekki langt á Stórmeistaramótinu hefur Rafn nú undirritað drengskaparheit að stjórnarskránni og getur því talist fyrsti maðurinn til að sitja á þingi og keppa á rafíþróttamóti hérlendis.

Stórmeistaramótinu í Counter-Strike lýkur um helgina með úrslitakeppni. Fylgjast má nánar með á Frag.is






×