Skoðun

Endurvekjum rann­sóknar­nefnd al­manna­varna

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Á dögunum lagði ég fram frumvarp um rannsóknarnefnd almannavarna. Með frumvarpinu er lagt til að rannsóknarnefnd almannavarna verði að nýju tekin upp í lög um almannavarnir. Á málinu eru ásamt mér meðflutningsmenn úr flestum flokkum á Alþingi og því um þverpólitískt mál að ræða.

Rannsóknarnefnd almannavarna var sett á fót með lögum um almannavarnir, nr. 82/2008, en var lögð niður með lögum nr. 39/2022. Þá hafði rannsóknarnefnd almannavarna verið virkjuð einu sinni og var það í kjölfar mikils óveðurs sem skall á í desember 2019.

Markmið laga um almannavarnir er að undirbúa, skipuleggja og framkvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir og takmarka að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni eða umhverfi eða eignir verði fyrir tjóni, af völdum náttúruhamfara eða af mannavöldum, farsótta eða hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum og veita líkn í nauð og aðstoð vegna tjóns sem hugsanlega kann að verða eða hefur orðið. Á undanförnum árum hefur hlutverk, verksvið og ábyrgð almannavarna í íslensku samfélagi orðið æ veigameiri í ljósi heimsfaraldurs COVID-19 og jarðhræringa á Reykjanesskaga. Í ljósi þess óvissutímabils sem nú er hafið á skaganum og vísindamenn spá að geti jafnvel varað í áratugi eða árhundruð er ljóst að almannavarnir munu áfram skipta þjóðina verulegu máli í náinni framtíð enda kallar langvarandi almannavarnaástand á öflugar almannavarnir.

Hlutverk rannsóknarnefndar almannavarna var, í gildistíð eldri laga, að rýna og meta framkvæmd almannavarnaaðgerða þannig að draga mætti lærdóm af reynslunni og stuðla með þeim hætti að umbótum. Með því fyrirkomulagi var ætlunin að koma í veg fyrir að framkvæmdarvaldið rannsakaði eigin aðgerðir eða þeirra aðila sem störfuðu á ábyrgðarsviði þess. Til þess að tryggja að markmið um að fullnægjandi rannsókn ætti sér stað var í stað rannsóknarnefndar almannavarna í lögum nr. 39/2022 kveðið á um skyldu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra til að halda rýnifundi eftir að almannavarnastigi væri aflétt með fulltrúum viðbragðsaðila sem hefðu tekið þátt í aðgerðum, rita fundargerðir um þá rýnifundi og ábyrgð ríkislögreglustjóra á að fylgja eftir úrbótum sem lagðar eru til á slíkum fundum.

Það er mín skoðun að það skjóti skökku við að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra rannsaki eigin aðgerðir líkt og tilgangur eldri laga var að koma í veg fyrir. Tel ég að betur færi á því að óháður utanaðkomandi aðili rýni ákvarðanir og aðgerðir almannavarna. Í því samhengi legg ég til að horft sé til framkvæmdar rannsóknarnefndar samgönguslysa sem hefur sýnt sig að skili góðum árangri. Því leggja flutningsmenn frumvarpsins til að rannsóknarnefnd almannavarna verði endurvakin. Nefndin skal gera tillögur til viðbragðsaðila og stjórnvalda um úrbætur innan kerfisins. Nefndin skal starfa sjálfstætt og rannsaka viðbrögð viðbragðsaðila að loknu hættuástandi og skila skýrslu um niðurstöður nefndarinnar til ráðherra, ríkislögreglustjóra og Alþingis.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×