Skoðun

Enn eitt dauðs­fallið í sofandi sam­fé­lagi

Sigmar Guðmundsson skrifar

Enn eitt dauðsfallið. Fjölmiðlar greina frá því í dag að átján ára drengur er dáin. Úr ofneyslu. Þessi ungi maður og öll hans fjölskylda átti sér draum um fallega framtíð. Draum um gott líf í góðu landi. En harkalegur veruleikinn er sá að skæður sjúkdómur lagði hann af velli í samfélagi sem er sinnulaust og sofandi þegar kemur að veikindum hans og annara. Sorgin er óendanlega mikil hjá fjölskyldu hans og vinum og ég votta þeim öllum mína dýpstu samúð.

Af hverju reynist það okkur sem samfélagi um megn að vera sorgmædd yfir þeirri staðreynd að um 100 einstaklinga deyja á hverju einasta ári á Íslandi úr þessum sama fíknisjúkdómi? Ef 100 manns myndu deyja í náttúruhamförum á morgun þá yrði þjóðfélagið lamað í sameiginlegri sorg. Sorg sem myndi svo þróast yfir í vilja og verkfæri til að gera allt sem í okkar valdi stæði til að koma í veg fyrir annað sambærilegt áfall. Af hverju nær þessi hugsun og samkennd ekki til þeirra sem deyja vegna fíknar?

Við erum sífellt að móta stefnu til framtíðar í mörgum málaflokkum. Til dæmis samþykkjum við samgönguáætlun til að forgangsraða fjármunum í tímasett verkefni, meðal annars út frá öryggi og samfélagslegum hagsmunum. Fjöldi banaslysa á fyrstu vikum ársins vekur með okkur vilja til að gera betur. Við sáum ógn og bregðumst blessunarlega við, bæði með umræðu og aðgerðum.

Það er ekki til of mikils ætlast að einn alvarlegasti heilbrigðisvandi þjóðarinnar fái sömu athygli hjá ráðamönnum. Við verðum að viðurkenna í verki að sorg og áfall fjölskyldu sem missir átján ára dreng úr banvænum sjúkdómi, er sorgin okkar allra.

Það er tilviljun að á sama degi og fjölmiðlar greina frá andláti unga mannsins mun ég mæla fyrir þingmáli þar sem stjórnvöldum er falið það hlutverk að móta stefnu í áfengis og vímuvarnarmálum til framtíðar. Að stjórnvöld viðurkenni í verki að við þurfum plan og áætlun til að lágmarka skaðann af sjúkdómi sem fellir um 100 einstaklinga og varpar þjáningu, sorg og myrkri yfir þúsundir annara á hverju einasta ári.

Slík stefna hefur ekki verið í gildi á Íslandi síðan 2020. Þetta leysir auðvitað ekki allan vandann. En verður kannski til þess að sorgin og þjáningin finni sér farveg í raunverulegum aðgerðum. Vöknum!

Höfundur er þingmaður Viðreisnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×