Skoðun

Ó­þolandi öll þessi vald­níðsla

Inga Sæland skrifar

Þann 13. júní 2021 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu Flokks fólksins um hagsmunafulltrúa eldra fólks. Þar segir m.a.:

„Alþingi ályktar að fela félags- og barnamálaráðherra að stofna starfshóp hagsmunaaðila auk starfsfólks ráðuneytisins sem semji frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks. Starfshópurinn meti m.a. hvar slíku embætti væri best fyrir komið og hvert umfang þess skuli vera. Starfshópurinn skili ráðherra drögum að frumvarpi fyrir 1. apríl 2022.”

Nú, tæpum tveimur árum frá því að skilafrestur starfshópsins rann út erum við ennþá að bíða eftir frumvarpi um embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks. Ráðherrann tjáði Alþingi það kinnroðalaust að hann teldi starfshóp sinn tróna yfir vilja löggjafans og þar með ákvað hann að það væri ástæðulaust að leggja fram frumvarp enda ótímabært að koma með einhvern hagsmunafulltrúa fyrir eldra fólk.

Það er afar mikilvægt að stofna sjálfstætt embætti sem hafi það hlutverk að gæta að hagsmunum eldra fólks, veita því aðstoð og kortleggja stöðu þess. Með aldrinum fylgja ýmsar áskoranir og áhættan á t.d. félagslegri einangrun eykst. Undanfarin ár hefur dregist úr staðbundinni þjónustu og vægi fjarþjónustu hjá bæði hinu opinbera og fyrirtækjum almennt hefur aukist. Sú þróun hefur leitt til þess að eldra fólk, sem á erfitt með að sækja þjónustu í gegnum netið, og vill helst fá að ræða við sinn þjónustufulltrúa, lækni, félagsráðgjafa, o.s.frv., augliti til auglitis upplifir nú gífurlega skerðingu á lífsgæðum. Það er ómetanlega mikilvægt að tryggja eldra fólki þá auknu réttarvernd sem felst í stofnun embættis hagsmunafulltrúa.

Með yfirgengilegri valdníðslu, þar sem framkvæmdarvaldið réðst enn eina ferðina gegn skýrum vilja löggjafans, tók ráðherrann embætti hagsmunafulltrúans og henti því í ruslið. Þetta gerði hann þrátt fyrir að skýrt komi fram í þingsályktunartillögu Flokks fólksins að starfshópur skipaður af ráðherra skyldi „semja frumvarp til laga um embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks“ fyrir 1. apríl 2022.

Til hvers erum við með þinglega meðferð mála ef ráðherrar bera enga virðingu fyrir störfum Alþingis? Við getum bara sleppt því að halda þingfundi ef ráðherrar ætla að beita valdníðslu og troða undir fótum skýran vilja löggjafans. Hvert er lýðræðið komið þegar ráðherrar fá ítrekað að brjóta lög án þess að sæta nokkurri ábyrgð. Það er ekki að furða þó virðing og traust almennings gagnvart Alþingi og störfum þess fari þverrandi, þegar ráðherrarnir sjálfir sýna þinginu algjört virðingarleysi.

Um leið og ég skora á ráðherrann, Guðmund Inga Guðbrandsson, að koma inn í þingið með frumvarp um hagsmunafulltrúa eldra fólks eins og löggjafinn hefur þegar samþykkt einróma. þá vil ég hvetja framkvæmdarvaldið, þ.e. ráðherrana, til að fylgja 2.gr. stjórnarskrárinnar sem kveður skírt á um þrískiptingu ríkisvalds, en ekki ganga um hana eins og marklaust plagg. Við í Flokki fólksins munum ekki leyfa þeim að komast upp með slíka háttsemi átölulaust.

Höfundur er formaður Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×