Skoðun

Förum var­lega í um­ferðinni

Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar

Nýtt ár er hafið og þótt við horfum mörg tilhlökkunaraugum til bjartari tíma þá erum við vön að þreyja þorrann. Því miður hafa áföll dunið yfir nú í upphafi árs og er nærtækast að minnast á eldsumbrotin í og við Grindavík. Umferðin hefur líka tekið sinn toll. Það sem af er ári hafa fimm látist í umferðinni á ellefu daga tímabili. Aldrei hafa fleiri látist í umferðinni á fyrstu dögum ársins frá því skráning hófst.

Kapp er best með forsjá

Færð á vegum getur verið erfið á þessum árstíma og víða um land er mikil hálka. Þegar búast má við slæmum akstursskilyrðum og samgöngutruflunum er mikilvægt að gefa sér góðan tíma í að hreinsa snjó af ökutækjum, skafa rúður og gæta þess að vera með öll ljós kveikt á bílnum. Gott er að leggja af stað fyrr eða jafnvel síðar en venjulega (eftir því sem hentar) til að losna við tafir og létta á umferðinni. Einnig er skynsamlegt að vera vel búin, klæða sig vel og hafa hjálpartæki á borð við skóflu og sköfu við höndina. Mikilvægt er að stilla hraðanum í hóf, halda öruggri fjarlægð milli ökutækja og keyra eftir aðstæðum.

Fær í flestan sjó

Tryggja þarf að ökutæki séu í góðu ástandi og hjólbarðar í lagi. Nauðsynlegt er að vera á góðum dekkjum, ekki síst þegar Vetur konungur lætur til sín taka. Gæta þarf að þrýstingi í dekkjum en hann getur snarlækkað þegar kalt er í veðri. Akstur án rétts þrýstings getur dregið úr öryggi í akstri, sérstaklega í blautu veðri eða hálku. Skoða þarf hjólbarða reglulega og athuga hvort mynstursdýpt sé næg, slit sé jafnt á dekkjum og ástand hjólbarðans almennt í lagi. Vetrarakstur getur verið afar krefjandi og akstursskilyrði geta breyst hratt. Því er mikilvægt að allur akstursbúnaður virki vel þegar á reynir.

Safetravel appið

Veðrið á Íslandi er óútreiknanlegt og aðstæður á vegum geta breyst hratt. Í Safetravel appinu færðu upplýsingar um færð og ástand vega í rauntíma, bæði á íslensku og ensku. Tilvalið er að benda erlendum ferðamönnum sem sækja okkur heim á appið. Einnig er hægt að fá tilkynningar og viðvaranir í gegnum textaskilaboð á ferðalögum um landið með því að skrá sig á safetravel.is. Appið gerir þér kleift að senda GPS staðsetningu þína til 112 ef þú ert í gönguferð í óbyggðum og eitthvað kemur upp á. Það einfaldar björgunarleit og flýtir fyrir. Auðvelt er að sækja appið ýmist á Google Play eða App Store og hlaða því niður.

Megum ekki sofna á verðinum

Þrátt fyrir að banaslysum hafi fækkað umtalsvert á síðustu áratugum þá eru atburðir síðastliðinna daga áminning um að við megum ekki sofna á verðinum. Fjármagnaðar umferðaröryggisáætlanir sem hluti af fjögurra ára samgönguáætlun hafa haft jákvæð áhrif í þá veru að fækka slysum en umferðin er samvinnuverkefni þar sem við þurfum öll að vera vakandi. Förum varlega í umferðinni, sýnum tillitssemi gagnvart öðrum vegfarendum og gefum okkur frekar nokkrar aukasekúndur til að meta aðstæður frekar en að taka sénsinn. Þær geta skipt sköpum.

Höfundur er verkefnastjóri forvarna hjá Sjóvá.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×