Skoðun

Ekki láta ræna þig heima í stofu

Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Nú í nóvember og í aðdraganda jólanna þá eykst umfang netverslana verulega. Fyrir utan hefðbundna verslun og jólaverslun þá eru nú svokallaðir nettilboðsdagar á borð við dag einhleypra, svartan föstudag og stafrænan mánudag.

Á þessum dögum koma fyrirtæki oft með freistandi tilboð og fara vinsældir þeirra sívaxandi, því hver vill ekki gera góð kaup fyrir jólin. Veltan í netverslun eykst en svo virðist sem tilraunum til netglæpa fjölgi að sama skapi.

Því er sérstakt tilefni er til að fara varlega þegar kemur að netverslun á næstunni og samþykkja ekkert nema þú sért þess fullviss um að það eigi við þín eigin kaup og viðskiptin séu við rétta aðila.

Þannig eru nýleg dæmi um að svikahópar hafi birt auglýsingar á Facebook þar sem boðin eru kostakjör á þekktum vörumerkjum, bæði innlendum og erlendum. Þegar smellt er á hlekkinn er vísað á eftirlíkingu af sölusíðu viðkomandi fyrirtækis sem svikahóparnir hafa búið til með það að markmiði að fá fólk, sem taldi sig eiga í viðskiptum í góðri trú, til að gefa upp kortaupplýsingar.

Þá hafa svikahópar einnig ítrekað sent út SMS skilaboð sem sagt er koma frá flutningafyrirtækjum með það að markmiði að fá einstaklinga, sem jafnvel eiga von á sendingum, til að gefa upp kortaupplýsingar eða opna fyrir rafræn skilríki.

Hér eru nokkar vel þekktar vísur sem virðast aldrei vera of oft kveðnar þegar kemur að verslun á netinu:

  1. Verður þú var við eitthvað óvenjulegt? Allt slíkt gæti verið hættumerki. Þannig er gott að skoða vefslóðina í hlekk eða þegar á vefsíðuna er komið. Er slóðin traust? Eru nöfn eða fyrirmæli rétt skrifuð?
  2. Kannaðu einnig greiðsluupplýsingarnar vel. Er greiðslan að fara á réttan aðila? Er upphæðin rétt? Er hún í réttum gjaldmiðli? Ef minnsti vafi kviknar getur eitt símtal til viðkomandi fyrirtæki eða stofnanir sparað háar fjárhæðir.
  3. Gefðu aldrei upp lykilorð að rafrænum skilríkjum.
  4. Samþykktu aldrei innskráningu á rafrænu skilríkin nema vera fullviss um hvað er verið að samþykkja.
  5. Allir hlekkir í samskiptum geta verið varasamir, sérstaklega þegar þú færð skilaboð sem þú áttir ekki von á, hvort sem það er í gegnum samfélagsmiðla, SMS eða í tölvupósti.
  6. Aldrei gefa upp banka- eða kortaupplýsingar nema vera viss um að vera á öruggri síðu. Ein leið er að fara sjálf beint inn á forsíðu viðkomandi heimasíðu í stað þess að fara í gegnum hlekki sem koma upp á leitarvélum eða samfélagsmiðlum.
  7. Hljómar eitthvað tilboð of gott til að vera satt? Þá getur borgað sig að kanna málið betur og ganga úr skugga um að um allt sé með feldu.

Hafir þú lent í svikahröppum, hafðu þá þegar samband við bankann þinn, kortafyrirtæki og lögreglu og farðu strax í að loka greiðslukortum og skrá þig út úr öllum tækjum í gegnum heimabanka.

Á vefnum Taktu tvær má finna fleiri góð ráð til að verjast netsvikum.

Brýnt er nú sem endranær að fara öllu með gát í netheimum svo jólaverslunin gangi eins og best verður á kosið.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×