Skoðun

Bið­staða á leikskólum -Fjölskylduland bjargar geð­heilsunni

Margrét Ólafsdóttir skrifar

Sonur minn sem er 2,5 árs hefur enn ekki fengið að mæta á leikskólann sem hann komst inn á núna í haust, vegna manneklu. Það þarf að ráða inn 6 starfsmenn áður en hann má mæta, sem þýðir að það gæti mögulega gerst eftir áramót eða næsta haust. Þessi óvissa er mjög óþægileg.

Leikskólinn er staðsettur fyrir framan húsið okkar og hann horfir oft á krakkana og segir „þarna gaman..krakkar róla“.

Ég hef oft farið með hann út á róló, en þar er hann oft einn að róla og engin börn sjáanleg. Það vill svo heppilega til að ég er í fæðingarorlofi núna, dóttir mín er orðin 7 mánaða gömul, en þau sofa á mismunandi tímum.

Ferðirnar út á róló hafa verið mislukkulegar því stelpan er stundum mjög þreytt og ekki tilbúin að sofa í vagninum. Sonur minn nær ekki að fá þá örvun sem hann þarf hérna heima og nær ekki að þroskast félagslega. Hann reynir sitt besta með því að hoppa í sófanum og hlaupa um allt ásamt ýmsum uppátækjum. Þetta er ansi snúin staða að barnið fái ekki að upplifa það að vera í kringum börn á hans aldri.

Margt í boði.

Eftir að hafa leitað lengi að stað sem væri skemmtilegur fyrir hann, þar sem hann getur þroskast í leik með börnum á hans aldri og aukið í leiðinni orðaforðann, þá fann ég loksins stað sem heitir Fjölskylduland sem er innileikvöllur.

Þessi staður hefur gjörsamlega bjargað dögunum okkar og við náð að leika okkur saman og notið stundarinnar ásamt því að allir ná að sofa á réttum tíma. Tala nú ekki um þegar það er rok úti á morgnana og ískalt.

Reykjavíkurborg virðist ekki ná að gera neitt fyrir foreldra í minni stöðu, engar heimgreiðslur né lausnir. Hann er of gamall til að vera hjá dagmömmu eða á ungbarnamorgnum í samfélagshúsum upp á félagsþroskann að gera.

Dóttir Margrétar er aðeins sjö mánaða. 

Á þessum stað hleypur hann um skælbrosandi og hlæjandi með öðrum börnum á milli mismunandi skemmtilegra leiksvæða sem innihalda stóra rennibraut, sandkassa, skemmtilegt tréhús á 2 hæðum, rólur og allskonar skemmtilegt dót sem er fullkomið fyrir hans aldur.

Það er virkilega gaman að fylgjast með honum þarna og geta einnig leikið við dóttur mína og spjallað við aðra foreldra. Það er líka gaman að sjá hvernig heilu fjölskyldurnar mæta saman og borða jafnvel kvöldmatinn þarna og fara svo beint heim með börnin í háttinn. Ömmur og afar hafa einnig verið að mæta með barnabörnin sín, þau geta sest í notalega sófa og fengið sér kaffi og með því á meðan. Mig langar að enda þessa litlu grein á því að þakka innilega fyrir þennan stað sem virðist eingöngu vera rekinn með hjartanu.

Höfundur er móðir sem bíður eftir leikskólaplássi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×