Skoðun

Það er vand­lifað í henni neyslu­ver­öld

Unnur Freyja Víðisdóttir skrifar

Jólin eru handan við hornið og stærstu útsöludagar ársins yfirvofandi. Ég veit ekki með ykkur en ég fæ vanalega hnút í magann mörgum vikum áður en þeir skella á. Pressan til að stökkva á tilboð og nýta mér afslætti við kaup á hlutum sem ég þarf ekki, í þeim eina tilgangi að spara kannski nokkra þúsundkalla, verður mér einfaldlega ofviða. Einhvern veginn enda ég samt alltaf stjörf fyrir framan tölvuna þar sem ég ráfa að því er virðist heilalaus milli netverslana og íhuga kaup á vörum sem ég hafði ekki einu sinni spáð í áður en þær birtust mér í auglýsingum á skjánum mínum. 

Já, það er vandlifað í henni neysluveröld. Þegar verslanir keppast við að selja fólki gull og græna skóga á lækkuðu verði vill nefnilega oft gleymast að einfaldasta leiðin til að spara pening er að eyða þeim ekki. Sumir óttast að missa mögulega af einhverju ef þeir mæta ekki í partíið og festast þannig í hringiðu neysluhyggjunnar. Fyrir mig sjálfa ná þessar kvíðablendnu tilfinningar vanalega hámarki rétt áður en útsölurnar klárast og þegar þær loksins klárast stend ég yfirleitt uppi tómhent - því ég fékk mig ekki til að kaupa neitt! Allt þetta stress til einskis. 

Oftar en ekki nýtir fólk þessa daga til að tæma innkaupalistann fyrir jólin og græja allar gjafirnar fyrir vini og vandamenn. Það er allt gott og blessað en þegar útsöluæðið rennur á okkur skulum við reyna að muna að bestu gjafirnar sem við getum gefið þeim sem okkur þykir vænst um fást hvorki úr hillum verslana né færðar í stafrænar innkaupakörfur. Á svona dögum er svo ekki síður mikilvægt að setja upp miðlalæsisgleraugun og temja sér gagnrýna hugsun því undir snjóflóði af því sem kunna að virðast frábær tilboð geta leynst gildrur fjársvikara sem vilja lokka grunlausa kaupendur í vef sinn til að hafa af þeim fé. Það eldar nefnilega enginn jólasteikina í loftsteikingarpottinum sem var hægt að vinna í Facebook leiknum sem reyndist svo vera netsvindl. 

Látum glysgjarnar auglýsingar ekki ginna okkur næstu daga. Hugsum okkur tvisvar um áður en við föllum fyrir tilboðum sem virðast of góð til að vera sönn og íhugum hvort kaupin sem við ætlum að gera endurspegli raunverulegar langanir og þarfir okkar áður en við fyllum innkaupakörfurnar af óþarfa. Þegar öllu er á botninn hvolft er ást, umhyggja og gæðastundir það dýrmætasta sem við getum gefið okkar nánustu um jólin og þeim gjöfum er ekki hægt að pakka inn og troða undir tré. Hvað sparnaðinn svo varðar held ég að hann felist ekkert endilega í því að gera góð kaup á útsölu heldur í hugarrónni sem fylgir því að vera meðvitaðri um eigin neysluhegðun. 

Höfundur er sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×