Rafíþróttir

Ár­mann skákaði At­lantic á Nuke

Snorri Már Vagnsson skrifar
PolishWonder og Hugo, leikmenn Ármanns og Atlantic.
PolishWonder og Hugo, leikmenn Ármanns og Atlantic. Ljósleiðaradeildin

Ármann lagði Atlantic í Ljósleiðaradeildinni í kvöld en þar er keppt í Counter-Strike: Global Offensive.

Ármann og Atlantic mættust á Nuke í kvöld. Ármann hófu leikinn í vörn og byrjuðu leikinn betur en Atlantic voru fljótir að jafna leikinn og staðan var 3-3 eftir sex lotur. Ármann tóku fyrri hálfleikinn föstum tökum í stöðunni 4-4 með PolishWonder fremstan í flokki, en þeir komu stöðunni í 10-5 eftir frábæra frammistöðu Ofvirks hjá Ármanni.

Staðan í hálfleik: 10-5

Atlantic fundu taktinn í upphafi seinni hálfleiks og minnkuðu muninn í 12-10 eftir 22 lotur. Leikmenn Atlantic virtust ætla að jafna leikinn en Sókn Ármanns fékk þó byr undir báða vængi í kjölfarið og sigruðu þeir fjórar lotur í röð. Staðan því orðin 16-10 og eftir heiðarlega tilraun Atlantic til að jafna voru það Ármann sem stóðu uppi með sigurinn.

Lokatölur: 16-10

Ármann halda í við Þórsara á toppi deildarinnar með 14 stig en Þór á leik til góða. Atlantic sitja enn í sjötta sæti með 8 stig, en Saga geta jafnað þá á stigum á fimmtudagskvöldið.






×