Rafíþróttir

Þórsarar skildu Blika eftir í rykinu

Snorri Már Vagnsson skrifar
þórblix

Þór vann afar öruggan sigur er liðið mætti Breiðabliki í lokaleik fimmtu umferðar Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike í kvöld.

Leikmenn stilltu sér upp á Inferno þar sem Breiðablik hóf leik í sókn. Þórsarar hófu leikinn betur í vörninni og tóku fyrstu þrjár loturnar áður en Viruz, leikmaður Breiðabliks átti góð skot úr íbúðunum á A-svæðinu og fann fyrstu sigurlotuna fyrir Breiðablik.

Þórsarar voru þó hvergi af baki dottnir og héldu stöðugu forskoti á Blika. Leikmenn Breiðabliks voru duglegir að taka miðjuna á Inferno en það reyndist þeim erfitt að komast inn á sprengjusvæðin tvö. Blikar sigruðu aðeins þrjár lotur til viðbótar í fyrri hálfleik þar sem Þórsarar réðu öllum ríkjum.

Staðan í hálfleik: 11-4

Eftir jafna skammbyssulotu voru það Þórsarar sem sigruðu hana og komu sér í 12-4. Áfram voru Þórsarar með jötungrip á leiknum þar sem ekkert virtist ganga upp fyrir Blika. Þórsarar sigurðu allar lotur seinni hálfleiks og tóku þeir því auðveldan sigur gegn Blikum sem halda áfram með slappa byrjun á tímabilinu.

Peter, leikmaður Þórsara stóð höfði og herðum ofar en allir aðrir í leiknum og var með 29 fellur.

Lokatölur: 16-4

Döpur byrjun Blika á tímabilinu heldur áfram en þeir eru enn í níunda sæti með 2 stig. Þórsarar eru aftur á móti enn í toppbaráttunni og jafna þeir nú Ten5ion og Ármann á stigum með 8 stig hvert.






×