Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Toppslagur og nýr leikur

Snorri Már Vagnsson skrifar
ljus

Fjórða umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter-Strike hefst í kvöld með tveimur leikjum, en báðir eru þeir á milli liða sem sitja hlið við hlið í stigatöflunni.

Í fyrri leik kvöldsins mætast efstu tvö lið deildarinnar, ÍA og NOCCO Dusty. Dusty eru þeir einu sem sigrað hafa alla sína leiki en ÍA getur jafnað þá á stigum í kvöld, sigri þeir viðureignina.

Í seinni leik er snemmbúinn botnslagur milli Breiðabliks og Atlantic, en liðin tvö þurfa nauðsynlega að koma sér á sigurbraut til að eiga séns á toppslag seinna á tímabilinu.

Leikirnir munu vera spilaðir í CS2, nýjustu útgáfu Counter-Strike sem Valve gaf út á dögunum. Spilað verður áfram eftir 30-lotu kerfi þar sem fyrsta liðið til að sigra 16 lotur sigrar viðureignina. Leikirnir í kvöld verða þeir fyrstu í íslensku deildinni til að vera spilaðir Í CS2, en leikurinn hefur tekið við af CS:GO sem hefur verið keppnisútgáfa Counter-Strike frá árinu 2012. Eflaust verður fróðlegt að sjá hvernig leikmenn spjara sig við breytingarnar og hvort einhverjir sýni nýja hlið í nýjum leik.

Fylgjast má með leikjunum í beinni útsendingu á Stöð 2 Esports eða í spilaranum hér fyrir neðan.






×