Tveir skotnir til bana á krá í Svíþjóð Atli Ísleifsson skrifar 22. september 2023 07:49 Lögregla var kölluð að staðnum um klukkan 22 að staðartíma í gærkvöldi. Getty Tveir voru skotnir til bana á krá í sænska bænum Sandviken í gærkvöldi.
Sænskir fjölmiðlar greina frá því að lögreglu hafi borist tilkynning um árásina klukkan 22:18 að staðartíma. Á vettvangi hafi lögregla komið að fjórum mönnum með skotsár og var staðfest í morgun að tveir þeirra hafi látist af sárum sínum. Lögregla staðfestir að enginn hafi enn sem komið er verið handtekinn vegna árásarinnar. Ekki hefur verið gefið upp hvort eins eða fleiri sé leitað en árásin átti sér stað á kránni Mulligan‘s á Hyttgatan í miðbæ Sandviken. Sandviken er að finna vestur af Gävle, um tvö hundruð kílómetra norður af Stokkhólmi. Heimildir sænska ríkissjónvarpsins herma að árásin tengist gengjastríði og að einn sem hafi verið staddur á kránni hafi verið skotmark árásarinnar. Aðrir sem hafi orðið fyrir skotum hafi ekki tengst deilunum. Lögregla girti af svæði í kringum árásarstaðinn og yfirheyrði fjölda manns í gærkvöldi og í nótt. Á Facebook-síðu kráarinnar segir að staðurinn verði lokaður fram yfir helgi vegna atburða gærkvöldsins.
Svíþjóð Mest lesið Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Innlent Telur fækkun ráðuneyta óheppilega Innlent Linda Dröfn á lista BBC um 100 áhrifamestu konur heims Innlent Gestur fari með rangt mál varðandi endurtalningu Innlent Umboðsmaður Alþingis óskar svara frá Útlendingastofnun Innlent Þessi voru oftast strikuð út í Reykjavík Innlent Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Erlent Var að reyna að hjálpa en sýndi af sér stórfellt gáleysi Innlent Rannsókn á manndrápi við Krýsuvíkurveg til saksóknara Innlent Launmorð á götum New York Erlent Fleiri fréttir Launmorð á götum New York Combs kærður fyrir að hafa látið konu hanga fram af svölum Mega ekki lengur leggja stund á hjúkrunar- og ljósmóðurfræði Leggja drög að ákæru á hendur forsetanum Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Herlögin loks felld úr gildi Sækja að annarri stórri borg í Sýrlandi Óvissa þrátt fyrir að þingið hafi fellt neyðarlögin úr gildi Lýsir yfir herlögum í Suður-Kóreu Engin greinarmunur gerður á Líbanon og Hezbollah ef friðurinn heldur ekki Rannsaka ekki ljósleiðaraskemmdir sem sakamál ennþá Stefnir í vantraust og aðra stjórnarkreppu Skorið á ljósleiðara í Finnlandi Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Sjá meira