Skoðun

Á degi leið­toga­fundar NATO í Litháen

Ámundi Loftsson skrifar

Orð­sending til fé­lags­manna og kjörinna full­trúa Vinstri hreyfingarinnar græns fram­boðs.

Nú eru daprir tímar í sögu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Flokkur ykkar er í ríkisstjórn sem styður og stendur að sívaxandi hernaðarbrölti. Nú hefur verið ákveðið að láta Úkraínumenn hafa svokallaðar klasasprengur, drápstól sem eru svo ógeðsleg og villimannleg að jafnvel hörðustu hernaðarsinnum ofbýður og hafna notkun þeirra, enda eru þau nær allstaðar bannaðar í hernaði.

Þrátt fyrir þetta og fulla vitneskju ykkar um að þessi hernaður verður ekki stöðvaður með auknum vopnasendingum eiga þær sér engu að síður stað með ykkar samþykki. Þó ekkert heyrist frá ykkur um þetta hernaðarbrjálæði er sú þögn himinhrópandi.

Það á reyndar það sama við um þá flokka annarra landa sem kenna sig við frið og hernaðarandstöðu. Það heyrist hvorki hósti né stuna frá þeim um þennan hernað. Sama á við um friðarsamtök, bæði á Íslandi og annarstaðar. Það heyrist ekki múkk frá þeim. Það er eins og þau séu ekki lengur til. Hafi gufað upp.

Samt blasir við að eina leiðin útúr þessum hernaði eru friðarumleitanir. Sama hve vonlaust það kann að virðast og ógeðfellt það er. Ef ekki verður leitað viðræðna um frið mun ástandið einungis versna, manntjón og eyðilegging halda áfram og aukast og friður verður sífellt fjarlægari.

Framtíðarskipan mála og yfirráð Úkraínu verða ekki ákveðin með hervaldi á þann hátt að varanlegur friður verði þar um. Friður fenginn með hervaldi verður hvorki sannur né langlífur. Það mun uppúr sjóða á ný.

Varanleg viðskipta- og stjórnmálaeinangrun Rússlands frá umheiminum er heldur ekki ástand sem getur orðið varanlegt til langs tíma. Eina leiðin til að koma samskiptum Rússa við önnur lönd í ásættanlegt horf eru viðræður. Aukinn hernaður gerir þá möguleika æ erfiðari og fjarlægari.

Ef samtök ykkar eiga að rísa undir nafni sem friðarsamtök og fyrir andstöðu við hernað verðið þið tafarlaust að láta af stuðningi ykkar við þetta fáránlega hernaðarbrölt og koma ykkur á ykkar rétta stað í stjórnmálunum og fara að tala fyrir friðsamlegum lausnum á þessu ástandi.

Nema þá að Vinstri hreyfingin grænt framboð sé orðinn hernaðarflokkur sem vill láta af andstöðu sinni við aðild Íslands að NATO og mælir almennt með hernaðarlausnum í erfiðum samskiptum milli þjóða.

Þá væri líka réttara að þið mynduð kveða uppúr með það þannig að enginn þurfi að velkjast í vafa um það frekar.

Höfundur er fyrrverandi sjómaður og bóndi og fyrrum félagi í VG.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×