Skoðun

Lands­liðið í nýtingu

Þór Sigfússon skrifar

Íslendingar hafa forystu í nýtingu hvítfisks. Þar munar miklu á milli okkar og annarra landa; Ísland nýtir bróðurpart hvitfisks eða rösklega 90% á meðan margar þjóðir nýta 50-60%. Þannig henda aðrar þjóðir milljónum tonna af verðmætum próteinum og vítamínum í stað þess að nýta þau.

Sjávarklasinn hefur unnið að því síðast liðinn áratug að efla samstarf milli útgerða, rannsóknarstofnanna og frumkvöðlafyrirtækja um fullnýtingu og sú vinna hefur skilað árangri. Eitt besta dæmið um slíkt samstarf er án efa þróun kollagens úr fiskroði sem klasinn ýtti fyrst úr vör árið 2012 og hefur síðan leitt af sér ýmis konar framleiðslu og áframvinnslu fiskroðs sem prótíngjafa. Kynning klasans utan Íslands á því sem klasinn hefur nefnt “landslið Íslands” í 100% fiski hefur líka vakið athygli á sérstöðu Íslands og þeim sprotum og fyrirtækjum sem hafa verið leiðandi á þessu sviði hérlendis. Nefna má í því sambandi fyrirtæki á borð við Lýsi, Kerecis, Haustak, Marine Collagen, Primex, Eylíf, Feel Iceland, Ensímtækni og Dropi svo einhver séu nefnd. Þetta landslið Íslendinga væri ugglaust mun minna ef ekki hefði komið til einstakt þjálfarateymi úr röðum rannsóknarstofnana eins og Matís og Háskóla Íslands, fjárhagslegur stuðningur opinberra samkeppnissjóða og síðast en ekki síst einstakur áhugi útgerða, sem hafa sýnt mikla framsýni og forystu á þessu sviði.

100% nýting er framtíðin

Stöðugt koma fram hugmyndir um að bæta nýtingu og auka verðmæti einstakra parta fisksins, bæði uppsjávarfisks og botnfisk, skelfisks, þörunga ofl. Segja má að stærsta áskorun klasans hérlendis liggi í að liðsinna áfram frumkvöðlum í fullnýtingu og um leið að hvetja bæði fiskræktendur og útgerðir til að vinna að fullvinnsluverkefnum. Það er ekki síst í fiskeldi sem tækifæri eru til staðar. Landeldisfyfirtæki hafa sýnt samstarfi við klasann mikinn áhuga og líklegt er að í þeim efnum munu Íslendingar geta náð forystu á heimsvísu með þeim innviðum sem eru til staðar hérlendis í fullvinnslu. Með öðrum orðum, fullvinnslutækniþekking í hvítfiski hérlendis getur flýtt verulega fullvinnsluþróun á laxi og öðrum eldisfiski. Í því felast mikil tækifæri fyrir íslenskan eldisfisk til að skapa sér enn frekar sérstöðu á markaði sem umhverfisvænn kostur og þannig búa til enn frekari verðmæti í formi útflutningstekna.

Verðmætt hug og tæknivit

Mun meiri áhuga má finna á aðferðum Sjávarklasans og árangri Íslands á þessu sviði en okkur óraði fyrir. Beiðnir berast víða að frá stjórnvöldum, umhverfissamtökum og fleirum að þiggja aðstoð klasans eða fá kynningu á hugmyndum Íslendinga á þessu sviði. Mörg þessara verkefna teljum við að geti stuðlað að vaxandi ráðgjafarstarfsemi Íslendinga á erlendri grund og að aukinni sölu íslenskrar tækni og hugviti sem geti hjálpað hringrásarhagkerfi heimsins. Hér liggja tækifæri fyrir allt klasasamstarfi á Íslandi til að bæði hjálpa þjóðum að flýta hringrás og draga úr kolefnisfótsporinu og auka á sama tíma útflutning á íslensku hugviti- og tækniþekkingu sem skapar mikil verðmæti fyrir okkur öll.

Sjávarklasinn Grandagarði 16, 101 Reykjavík heldur opið hús þann 25 maí frá 14.00-18.00. Öll velkomin

Höfundur er stofnandi Sjávarklasans.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×