Skólp flæddi inn á heimili fjölskyldu í Kópavogi: „Hér er allt fullt af skít“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 30. mars 2023 21:51 Fjölskyldan þarf að búa á hóteli á meðan verið er að sótthreinsa íbúðina. Aðsendar Fjögurra manna fjölskylda í Kópavogi sér fram á milljóna tjón eftir að stífla í skólpröri olli því að skólp flæddi inn í íbúð þeirra og olli gífurlegum skemmdum. Eigandi segir Kópavogsbæ hafa viðurkennt ábyrgð á stíflunni. Svör frá tryggingafélaginu séu á þá leið að ekkert sé hægt að aðhafast fyrr en beiðni berist frá Kópavogsbæ. Íbúðin sé byrjuð að mygla og tíminn á þrotum. Kópavogsbær hafnar að hafa viðurkennt ábyrgð á stíflunni.
Heiðrún Finnsdóttir býr ásamt eiginmanni sínum, tveimur börnum, ketti og hundi í sex íbúða fjölbýlishúsi sem byggt var í kringum aldamótin. „Okkar íbúð er semsagt á fyrstu hæð og í kjallaranum, þar sem bílakjallarinn var innréttaður sem íbúðarhúsnæði og samþykktur af bænum. Íbúðin var nýuppgerð þegar við fluttum inn á seinasta ári, nýlagt parket og allt nýtt. Klósettið er í kjallaranum, þrjú svefnherbergi, þvottahúsið, stofan, skrifstofa og baðherbergi.“ Saur, rusl og óþrifnaður út um allt Síðastliðið þriðjudagskvöld fór sonur Heiðrúnar niður í kjallarann og tók þá eftir að neðri hæðin var að fyllast af vatni. „Hann sér vatn út um allt og gargar á systur sína, pabba sinn og afa sinn, sem hringir á 112 og í kjölfarið kemur slökkviliðið,“ segir Heiðrún en sjálf var hún í vinnu á meðan þetta gerðist. Hún lýsir því hvernig skólpið flæddi inn í íbúðina, með tilheyrandi óþef og óþrifnaði. „Maðurinn minn lýsir því þannig að það hafi verið saur, tægjur af rusli og klósettpappír og allskyns viðbjóður.“ Þegar Heiðrún kom heim mætti henni hópur af slökkviliðsmönnum sem voru í óða önn að moka skólpinu út og „röflandi yfir dömubindum og túrtöppum í niðurföllum“ eins og hún orðar það. Síðan hafi dælubíll mætt á svæðið og hafist handa við að reyna að losa stífluna. Heiðrún segir að í ljós hafi komið að stíflan átti rætur sínar að rekja í enn stærri stíflu í skólpkerfum Kópavogsbæjar. „Fulltrúi Kópavogsbæjar kom á meðan þetta var allt saman að gerast og hann játaði þarna hreint út að þeir hafi vitað af stíflunni í einhvern tíma. Þannig að trassaskapurinn er augljóslega hjá bænum.“ Enginn axlar ábyrgð Heiðrún segist hafa hafst samband við VÍS í kjölfarið, sem er með húseigendatrygginguna. „Þeir sögðu að stíflan væri þeim utanaðkomandi og bentu okkur á að tala við Kópavogsbæ. Kópavogsbær er hins vegar tryggður hjá VÍS. Þannig að þessir tveir aðilar benda bara á hvorn annan og ekkert gerist. VÍS segist ekkert geta gert fyrr en Kópavogsbær lætur heyra í sér. Af því að stíflan er í skólplögnum Kópavogsbæjar segir VÍS að þeir geti ekkert gert fyrr en það sé ljóst hver ber ábyrgð á bótaskyldunni og benda á Kópavogsbæ, sem bendir á Vís. Og enginn ætlar að axla ábyrgð. Við höfum líka reynt að hafa samband við umsjónarmann hjá bænum, sem sér um skólplagnirnar,en hann annaðhvort lætur ekki ná í sig eða segist ekki geta gert neitt.“ Heiðrún segist hafa mætt á skrifstofur bæjarins í dag, eftir að hafa eytt öllum gærdeginum í að leita svara hjá bænum og tryggingafélaginu. Hún hafi loks náð tali af afleysingastarfsmanni sem hafi ekkert getað gert en hann hafi síðan komið henni í samband við fulltrúa hjá umhverfissviði bæjarins. „Þá segir hann mér að pappírarnir hafi verið sendir á VÍS í hádeginu, og að þetta sé „í ferli.“ Fulltrúi sem ég talaði við hjá VÍS segist hins vegar ekkert hafa heyrt frá þeim.“ Fjölskyldan hefur fengið þau tilmæli frá tryggingafélaginu að ekki megi hrófla við neinu í íbúðinni fyrr en matsmenn séu búnir að koma og mæla íbúðina út. „En nú er íbúðin byrjuð að mygla og við getum ekki beðið lengur. Við erum eiginlega búin að gefast upp á biðinni og erum byrjuð að moka út. Við fengum sjálf matsmann til okkar í gær. Mér skilst að það þurfi að saga að lágmarki 35 til 40 cm af öllum gipsplötum á gifsveggjum. Það eru ennþá pollar hér og þar. Allt innbúið er ónýtt, allir sófar, heimabíóið, allt sem var inni á baði. Sem betur fer skemmdist lítið hjá börnunum.“ Algjörlega ráðþrota Fjölskyldan hefur þurft að dvelja á hóteli síðustu nætur, þar sem að það þarf að þrífa og sótthreinsa alla íbúðina. „Eftir situr heil fjölskylda í skítnum,“ eins og Heiðrún orðar það sjálf. „Það er komið á þriðja sólarhring síðan þetta gerðist og það gengur ekkert að tjónka við bæinn, við fáum engin svör og vitum ekkert,“ segir Heiðrún. Hún segir fjölskylduna sitja eftir í „saurbæli“, sem enginn vilji taka ábyrgð á, þar sem allt strandi það á pappírsvinnu. Hún segist algjörlega ráðþrota. Biðin sé óþolandi. „Við höfum ekkert komist í vinnu vegna þess að við þurfum að vesenast í þessu. Það getur ekki verið að einstaklingur þurfi að þrífa upp skítinn eftir heilt bæjarfélag, í orðsins fyllstu merkingu. Við getum ekki beðið lengur.“ Uppfært 31. mars klukkan 12:22 með tilkynningu frá Kópavogsbæ Ekki er rétt sem fram kemur í fréttinni að Kópavogsbær hafi viðurkennt ábyrgð á stíflunni og þá er ekki rétt að Kópavogsbær hafi vitað af stíflunni. Kópavogsbær lét hreinsa lögnina í gær, og voru lagnir myndaðar til að athuga með frekari skemmdir. Húsnæðiseigendum hefur verið bent á að tilkynna tjónið til VÍS, sem er tryggingarfélag Kópavogsbæjar. Vís tekur við tilkynningunni og leitar í framhaldi eftir upplýsingum um atvikið og metur bótaskyldu.
Kópavogur Skólp Tryggingar Mest lesið Öskraði þegar hann var leiddur í dómsal Erlent "Borgin er ekki að veita Bíó Paradís styrk“ Innlent Eiga yfir höfði sér dauðadóm fyrir að hylja ekki hár sitt Erlent Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Innlent Boða tíma „stöðugleika og friðar“ Erlent Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Innlent Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn Innlent Stærstu og umdeildustu sigrar ársins Innlent Hefði átt að vera ljóst að logandi pappír í skáp gæti endað með bruna Innlent Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu Innlent Fleiri fréttir Stærstu og umdeildustu sigrar ársins Ríkur vilji til að styðja áfram við bakið á Úkraínu Líkamsárásir, þjófnaðir og rúðubrot Níræður maður og nýbakaður tvíburafaðir duttu í lukkupottinn Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Innlendir framleiðendur stundi samkeppnishindranir Óánægja í Laugarneshverfi: „Við ráðum ekki við þetta ægivald“ Viku frestur til að kæra kosningarnar Innan við þriðjungur þingmanna hefur setið lengur en eitt kjörtímabil Bjartsýn á að til verði stjórn sem þori að taka ákvarðanir Hefði átt að vera ljóst að logandi pappír í skáp gæti endað með bruna Vill aukinn viðbúnað á Íslandi til að bregðast við ófyrirséðum árásum Áhrif hallareksturs ríkissjóðs á stjórnarmyndun og jólaskrautsgerð fanga Fráfarandi stjórn skilji eftir verra bú en haldið er fram Afkomuhorfur ríkissjóðs lakari en áður Grétar Snær höfuðkúpubrotnaði í Taílandi Sjálfstæðismenn í sérflokki hvað útstrikanir varðar Birta nöfn og vörumerki tengd SVEIT í mótmælaskyni „Sannleikurinn oft fyrsta fórnarlambið“ Evrópuþingmenn hvetja yfirvöld til að láta af hvalveiðum „Mikilvægt fyrir dalinn að það sé komin ákvörðun“ Kannabissérfræðingurinn kom að ræktun á öðrum sveitabæ Lýsa eftir vitnum að meintri líkamsárás á Ísafirði Hundarnir áttu ekki að vera saman Þrír hópar vinna að málefnum fyrir nýja ríkisstjórn Stjórnarmyndun og árásargjarnir hundar í Laugardal BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu Um 61 þúsund hillumetrar af pappírsskjölum í vörslu ríkisins Sex verslanir fá sautján milljónir í ríkisstyrk Gera kröfu um að varaaflsstöðin verði áfram í Vík Sjá meira