Skoðun

Víta­hringur í boði Mennta­sjóðs náms­manna

Eyvindur Ágúst Runólfsson skrifar

1. gr. Markmið.

Markmið laga þessara er að tryggja þeim sem falla undir lögin tækifæri til náms, án tillits til efnahags og stöðu að öðru leyti, með því að veita námsmönnum fjárhagslega aðstoð í formi námslána og styrkja.

Ég byrjaði í lögfræði haustið 2017, kláraði BA námið 2020 og byrjaði strax í meistaranámi. Á þessum tíma skall á Covid faraldurinn og mér bauðst vinna með skóla sem ég þáði með þökkum. Þegar leið á önnina fann ég að ég hafði ekki tíma til þess að sinna bæði náminu og vinnunni að fullu og því minnkaði ég við mig í skólanum. Ári seinna var ég farinn að vinna 100% vinnu og skólinn settur í annað sæti. Núna er komin sú staða hjá mér að mig langar til þess að klára námið, hætta að vinna á daginn svo ég geti mætt í tíma og sinnt náminu að fullum hug. Til þess þarf ég að fá námslán hjá menntasjóði námsmanna. Þar sem ég er skráður í tvo áfanga þessa önnina lítur Menntasjóður svo á að þeir þurfi að skerða lánið tengt tekjum mínum þetta árið. Gott og vel. Ég vinn hjá opinberri stofnun og er því ekki með forstjóralaun og því ætti þetta að vera einfalt mál.

Áætlaðar tekjur mínar til 1. sept eru 4.240.000 (fyrir skatt). Miðað við reiknivél Menntasjóð námsmanna skerðir það mögulegt lán um 620.325 kr. og því ætti ég að ná að lifa af 355.956 kr. fyrir fjóra mánuði eða 88.989 kr. hvern mánuð. Þetta er auðvitað ekki tekjur sem ég gæti lifað á og þyrfti ég því að finna mér vinnu með náminu um kvöld og helgar. En viti menn þá lækka auðvitað námslánið í samræmi við tekjurnar sem ég myndi fá. Ég er því fastur í þeim vítahring að geta ekki hætt að vinna og klárað skólann. Er þetta kerfi að þjóna sínum tilgangi? Á norðurlöndum er kerfið hugsað sem styrkir og stuðningur fyrst og fremst, hérna er enginn hvatning fyrir mig að klára námið heldur aðeins fyrirstaða.

Höfundur er námsmaður.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×