Skoðun

Leik­skóla­kennari í inn­vistar­vanda

Sigurlaug Vigdís Einarsdóttir skrifar

Hvað felst í titlinum? Kennari sem á í innri vanda eða er það húsnæðið sem kennarinn vinnur í sem er í vanda? Þó að seinni fullyrðingin sé skilgreiningin (innvistarvandi = rakaskemmdir/mygla í húsnæði á vegum borgarinnar) þá er í raun ekki hægt að aðgreina þessar tvær skilgreiningar. Um leið og húsnæðið lendir í vanda fylgir kennarinn með, en ekki bara kennarinn heldur líka börnin sem eru í húsnæðinu.

Vandi leikskólans míns hófst 2020 (en var löngu fyrirséður) þegar við fengum loksins aðgang að skýrslum um húsnæðið og í framhaldi af því var kjallara hússins lokað og þar með misstum við mikið húsnæði. Þá þurfti að setja upp skála/skúra á lóð hússins fyrir eina deild og starfsmannaaðstöðu. Það tók auðvitað sinn tíma en tókst á vormánuðum 2021. Þá tóku við framkvæmdir í kjallara sumarið 2021 sem stóðu auðvitað yfir lengri tíma en ætlað var svo börnin á deildinni minni þurftu að upplifa mikinn hávaða í byrjun hausts. En rólegheitin vörðu ekki lengi því snemma árs 2022 þurfti að loka hluta deildar (með góðu plasti) svo hægt væri að hefja vinnu á innvistarvandanum. Börnin (og starfsfólkið) þurftu að sætta sig við minna svæði og mikinn hávaða næstu mánuðina en þetta tók enda. Sumarið átti að fara í enn frekari endurbætur en þeim var ekki lokið í tíma svo börnunum á deildinni var skipt upp og þurftu að sætta sig við ófullnægjandi aðstæður, sem við starfsfólkið reyndum útbúa sem frábærar aðstæður, í rúmar tvær vikur. Þegar flutt var aftur og þá á nýju deildina þeirra byrjuðu framkvæmdir á þaki sem stóðu yfir í marga mánuði og nú í mars 2023 er ég ekki alveg viss um hvort sé að fullu lokið. Í dag er ljóst að tæma þarf húsnæðið svo hægt sé að lagfæra það og við vitum ekki hvar við endum.

Er þetta það sem við viljum bjóða börnunum okkar uppá? Eða kennurum barnanna okkar? Í dag er ljóst að leikskólinn minn getur ekki tekið við nýjum börnum í haust. Er hægt að bjóða þeim börnum upp á það?

Staðan er algerlega óviðunandi og ekkert heyrist frá borgaryfirvöldum. Hvað er til ráða? Hvernig gat þetta gerst og eftir allan þennan tíma virðist ekki vera til nein áætlun og fá úrræði fyrir leikskóla í innvistarvanda.

Ég er leikskólakennari sem hef unnið í leikskólum borgarinnar í yfir 30 ár og upplifað margt en í dag er ég ekki viss um að ég geti meir, minn innvistarvandi er að ná yfirhöndinni og ég að gefast upp.

Höfundur er leikskólakennari í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×