Rafíþróttir

Ljós­leiðara­deildin í beinni: Þrjú lið berjast um deildar­meistara­titilinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Leikir kvöldsins.
Leikir kvöldsins.

Lokaumferð deildarkeppninnar í Ljósleiðaradeildinni í CS:GO klárast í kvöld þar sem þrjú lið eiga enn möguleika á að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

Þór, Atlantic Esports og ríkjandi meistarar Dusty mæta öll til leiks í kvöld og öll geta þessi þrjú lið tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Dusty er með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar og því getur liðið varið titilinn með sigri, sama hvernig aðrir leikir kvöldsins fara.

Við hefjum leik á viðureign Ármanns og FH klukkan 19:30 áður en alvaran tekur við.

Atlantic mætir Ten5ion klukkan 20:30 í leik sem ætti að vera skyldusigur fyrir Atlantic, enda situr Ten5ion í næst neðsta sæti deildarinnar með jafn mörg stig og botnlið Fylkis.

Liðsmenn Atlantic munu svo bíða spenntir eftir seinustu viðureign kvöldsins þegar Dusty og Þór mætast klukkan 21:30. Eins og áður segir tryggir Dusty sér deildarmeistaratitilinn með sigri, en tapi liðið gegn Þór eru liðsmenn Atlantic deildarmeistarar. Eini möguleiki Þórs á deildarmeistaratitlinum er að Atlantic tapi gegn Ten5ion og Þórsarar vinni svo sigur gegn Dusty.






×