Skoðun

Tryggjum fæðuöryggi þjóðar

Anton Guðmundsson skrifar

Nær sjaldan í seinni tíð hefur fæðuöryggi skipt okkur íslendinga meira máli eins og nú, ófriður í evrópu vegur þar þungt í umræðunni, víða eru menn farnir að finna fyrir vöruskorti og hækkandi verði á allri hrávöru. 

En hvað þýðir þetta orð fæðuöryggi?

egar talað er um fæðuöryggi samhvæmt skilgreiningu Matvælaráðneytisins þá er átt við að allt fólk, á öllum tímum, hefur raunverulegan og efnahagslegan aðgang að nægum, heilnæmum og næringarríkum mat sem fullnægir þörfum þess til að lifa virku og heilsusamlegu lífi. 

Núverandi búvörusamningar tóku gildi 1.janúar 2017 þeir eru gerðir milli ríkisins og bændasamtaka íslands en þar er fjallað um stjórn á framleiðslu búvara og framlaga til landbúnaðarins að hálfu ríkisins, framlög á fjárlögum vegna búvörusamningana í ár hljóða upp á 17,2 miljarða króna, Nautgriparækt fær um 8,4 miljarða, Sauðfjárrækt 6,2 miljarða, Garðyrkja um rúman miljarð og svo erum við með rammasamninginn sem hljóðar upp á 1,5 miljarð króna. Rammasamningu á að taka utan um jarðræktar styrki, og nýliðun svo fátt eitt sé nefnt. 

Búvörusamningarnir gilda í 10 ár með tveimur endurskoðunar ákvæðum fyrst árið 2019 og nú stendur þessi síðari endurskoðun fyrir dyrum 2023. Staðreyndin er sú að krefjandi tímar eru framundan í landbúnaði með hækkun á öllum aðföngum til bænda. 

Einnig verðum við að horfast í augu við þá staðreynd að meðalaldur bænda er um 60 ár og nýliðun lítil í bændarstéttinni. Leggja þarf aukið fé til búvörusamninga að mínu mati til að stuðla að tilvist bænda í íslenskum landbúnaði. Einnig þarf að setja aukið fé í rammasamninginn og vinna markvist af því að að hvetja ungt og kraftmikið fólk til starfa í landbúnaði.

 Við vitum það íslendingar að okkar kjöt er eitt það besta í heimi og mjög lítil notkun sýklalyfja ásamt aðgangi að hreinu og tæru vatni og fæði tryggir gæðin í okkar matvælaframleiðslu. 

Ég skora því á samflokksmenn mína þingmenn og ráðherra framsóknarflokksins að beita sér fyrir því að þessi endurskoðun búvörusamninga tryggi styrkari stoð undir fæðuöryggi íslensku þjóðarinar. 

Höfundur er oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×