Skoðun

Heim­greiðslur, mann­ekla í leik­skólum og við­brögð skóla­yfir­valda vegna skóla­forðunar

Kolbrún Baldursdóttir skrifar

Næstu mál okkar Flokks fólksins í borgarstjórn 7. febrúar snúa annars vegar að tillögu um heimgreiðslu vegna alvarlegra manneklu í leikskólum og langs biðlista og hins vegar að umræðu um orsakir skólaforðunar og viðbrögð skólayfirvalda og fagfólks skóla þegar barn glímir við skólaforðun.

Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt til í borgarstjórn að foreldrar yngstu barnanna hafi val um að þiggja heimgreiðslur meðan beðið er eftir leikskólaplássi. Þetta úrræði væri val fyrir foreldra fyrstu tvö ár barnsins. Einhverjir foreldrar hafa tækifæri til að vera heima hjá barni sínu fyrstu misserin. Heimgreiðsluúrræðið myndi því mögulega stytta biðlista leikskólanna sem eru í sögulegu hámarki vegna manneklu, myglu í leikskólahúsnæði og seinkun á verkefninu Brúum bilið.

Skólaforðun, orsakir og úrræði

Hitt mál Flokks fólksins fyrir borgarstjórn er umræða um orsakir skólaforðunar og viðbrögð skólayfirvalda og fagfólks skóla þegar barn glímir við skólaforðun.

Umræða um skólaforðun hefur aukist nokkuð síðan Velferðarvaktin fór að kanna umfang hennar. Nýlega var haldið málþing um skólaforðun. Skólaforðun felst í því að börn og ungmenni forðast að fara í skólann af einhverri ástæðu/ástæðum. Um þúsund íslensk börn eru talin glíma við skólaforðun og treysta sér ekki til að mæta í skólann.

Skólaforðun er ekki nýtt vandamál. Þær ástæður eða orsakir sem helst eru nefndar eru mest raktar til andlegrar vanlíðunar og kvíða. Ástæður og orsakir kvíða geta verið margvíslegar og margslungnar.

Borgarfulltrúi Flokks fólksins kallar eftir umræðu um helstu orsakir og það faglega umhverfi, ferli sem mál af þessu tagi fara í reykvískum grunnskólum. Kallað er eftir umræðu um samræmd viðmið við að greina skólaforðun og hvernig þau viðmið geta nýst. Einnig er óskað eftir viðbrögðum meirihlutans við þeirri staðreynd að fagfólki skólans hefur ekki fjölgað síðustu ár samhliða fjölgun nemenda.

Öll þekkjum við biðlistann hjá Skólaþjónustunni í Reykjavík. Með hverri viku lengist listinn. Gera má því skóna að ákveðinn fjöldi barna á biðlistanum glími við skólaforðun.

Allir helstu lykilaðilar hafa rætt um biðlista barna til sálfræðinga og öðru fagfólki jafnt í ræðu, riti og á málþingum. Margir foreldrar í angist sinni upplifa sem kerfið hafi gefist upp á barni sínu og fjölskyldunni.

Barnasáttmálinn sem lögleiddur er á Íslandi hefur ekki verið innleiddur í Reykjavík. Ef horft er til innihalds Barnasáttmálans má segja að brotið sé daglega á börnum í Reykvísku skólakerfi.

Í þessum málum sem öðrum tengdum börnum er ekki í boði að gera ekki neitt, eða gera lítið sem ekkert. Áhrif og afleiðingar langvinnrar skólaforðunar getur leitt til félagslegrar fötlunar einstaklingsins sem kemur niður á möguleikum hans að fara í frekara nám eða að stunda vinnu. Ef ekki næst að finna viðunandi lausn getur það litað allt líf þessara einstaklinga sem er ekki aðeins skaði þeirra heldur samfélagsins alls.

Það er von okkar í Flokki fólksins að um þessi mál verði gagnleg umræða á þriðjudaginn næstkomandi og að tillögunni um heimgreiðslur verði vísað til frekari skoðunar en ekki vísað frá eða felld.

Höfundur er sálfræðingur og oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×