Rafíþróttir

Bein út­sending: Toppslagur og mikið undir á Ofurlaugardegi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Það verður nóg um að vera á Ofurlaugardegi í Ljósleiðaradeildinni.
Það verður nóg um að vera á Ofurlaugardegi í Ljósleiðaradeildinni.

Seinni Ofurlaugardagur tímabilsins í Ljósleiðaradeildinni fer fram í dag. Útsending Stöðvar 2 Esport hefst klukkan 16.45 en einnig má fylgjast með á Twitch-rás Rafíþróttasambands Íslands sem og í spilaranum neðst í fréttinni.

Það má segja að um sannkallaða veislu sé að ræða. Leikar hefjast klukkan 17.00 og standa til 22.00 en í dag fer heil umferð fram í Ljósleiðaradeildinni þar sem að venju verður keppt í tölvuleiknum Counter-Strike:Global Offensive.

Stærsta viðureign dagsins er líklega sú fyrsta þegar topplið Atlantic Esports og ríkjandi Ljósleiðaradeildarmeistarar Dusty mætast. Búast má við að Þórsarar fylgist vel með þeirri viðureign, en fari það svo að Dusty hafi betur gegn Atlantic og Þór vinni sinn leik gegn Ten5ion verða þrjú lið jöfn á toppnum að Ofurlaugardeginum loknum.






×