Skoðun

Norður­lönd – afl til friðar

Katrín Jakobsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifa

Samstarf Norðurlanda hvílir á sterkum menningarlegum, sögulegum og samfélagslegum tengslum. Norrænt samstarf byggir á þeirri sýn að þegar löndin leggja krafta sína saman skili það auknum árangri í að takast á við mikilvægustu áskoranir samtímans. Í ár gegnir Ísland formennsku í Norrænu ráðherranefndinni en ríkin skiptast á að veita norrænu samstarfi forystu, annars vegar á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar og hins vegar Norðurlandaráðs.

Norrænt samstarf hefur skilað árangri á mörgum sviðum og má þar nefna jafnrétti kynjanna, umhverfismál og almenna velferð í samfélögum okkar. Norrænt samstarf nýtur mikils stuðnings á Norðurlöndum og margar kynslóðir þekkja ekki tilveruna án þess. Mögulega hættir okkur stundum til að taka samstarfinu sem sjálfsögðum hlut en það sprettur þó ekki af sjálfu sér og er ekki sjálfgefið. Það er afrakstur samtals, samvinnu og sameiginlegra ákvarðana sem styrkja okkur sem eitt svæði.

Í formennskutíð Íslands árið 2019 samþykktu forsætisráðherrar Norðurlandanna nýja framtíðarsýn fyrir norrænt samstarf fram til ársins 2030 og á núverandi formennskuári Íslands verður unnið að áherslum sem falla að framtíðarsýninni, en hún snýst um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims. Þar að auki munum við leggja sérstaka áhersla á frið og mikilvægi friðar sem undirstöðu mannréttinda, velferðar, kvenfrelsis og umhverfis- og loftslagsverndar. Friðarmál eiga að vera einn af hornsteinum norræns samstarfs og saman geta Norðurlöndin talað sterkri röddu fyrir friðsamlegum lausnum og afvopnun.

Málefni hafsins og græn umbreyting í nýtingu á auðlindum þess munu fá sérstaka athygli í samræmi við nýlega yfirlýsingu forsætisráðherra norrænu ríkjanna. Ísland mun líka leggja áherslu á nánari samvinnu innan Norðurlanda í loftslagsmálum, sérstaklega á sviði orkuskipta og réttlátra grænna umskipta, þar með talið á vinnumarkaði. Norðurlöndin deila þeirri sýn að réttlát umskipti verði best tryggð með þríhliða samtali og samvinnu stjórnvalda, verkalýðshreyfingar og atvinnurekenda. Þá verður haldið áfram að sækja fram í stafrænni þróun og lögð áhersla á að finna leiðir til að gera nýjar rafrænar lausnir aðgengilegar öllum þeim sem geta átt erfitt með að tileinka sér slíkar nýjungar, ekki síst fötluðu fólki.

Við munum jafnframt leggja ríka áherslu á mannréttindamál, meðal annars með því að vinna gegn því bakslagi sem orðið hefur í réttindabaráttu hinsegin fólks, standa vörð um áunnin réttindi og stuðla að því að auka réttindi þessa hóps, ekki síst transfólks og intersex fólks. Þá verður athyglinni beint að því að Norðurlönd eru skapandi svæði sem leggja áherslu á nýsköpun í menningarlífi. Norðurlandaráð hefur lagt áherslu á að samstarf á sviði menningar og mennta sé undirstaða norrænnar vináttu og samstarfs á milli þjóðanna auk þess sem menning og skapandi greinar gegna æ mikilvægara hlutverki í hagkerfinu.

Ísland mun í formennskutíð sinni árið 2023 leggja áherslu á samstarf norrænu landanna um fjölmörg málefni bæði heima fyrir og í alþjóðlegu samstarfi með lýðræði, mannréttindi og umhverfisvernd að leiðarljósi.

Við hlökkum til samstarfsins.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, samstarfsráðherra Norðurlanda




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×