Rafíþróttir

Tilþrifin: Th0r mætti ferskur eftir pásuna löngu

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Th0r átti bestu tilþrif gærkvöldsins.
Th0r átti bestu tilþrif gærkvöldsins.

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Th0r í liði Dusty sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Ríkjandi Ljósleiðaradeildarmeistarar Dusty mættu liði Ármanns í gær þar sem meistararnir gátu jafnað toppliðin tvö að stigum með sigri.

Meistararnir misstigu sig hins vegar og það voru liðsmenn Ármanns sem unnu góðan sigur, 16-12.

Þrátt fyrir tapið var það liðsmaður Dusty sem átti bestu tilþrif gærkvöldsins. Snemma í leiknum þegar staðan var 3-1, Ármanni í vil, birtist Th0r út úr reyknum og tók út tvo meðlimi Ármanns á skotstundu.

Klippa: Elko tilþrifin: Th0r mætti ferskur eftir pásuna löngu





×