Skoðun

Gott að eldast

Willum Þór Þórsson skrifar

Það að eldast er gæfa og við sem á eftir komum eigum fyrri kynslóðum margt að þakka. Aldursamsetning þjóðarinnar er að breytast vegna þess að velferðarkerfið okkar er gott. Þessi breyting er því ekki aðeins jákvæð heldur líka fyrirsjáanleg og það er okkur sem samfélagi mikilvægt að undirbúa hana vel.

Við þurfum að byggja upp aldursvænt samfélag þar sem borin er virðing fyrir einstaklingnum og þörfum hans á öllum æviskeiðum. Við þurfum að gera öllum kleift að viðhalda færni, virkni og sjálfstæði um leið og við þurfum að vera tilbúin að grípa einstaklinga sem þurfa á auknum stuðningi velferðarkerfisins að halda. En hvernig náum við því markmiði?

Heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk

Í sumar var viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk undirrituð af heilbrigðisráðherra, félags- og vinnumarkaðsráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, fulltrúum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landsambandi eldri borgara. Verkefnastjórn, skipuð af heilbrigðisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra, var falið að leiða heildarendurskoðunina og leggja fram aðgerðaráætlun eftir ár sem næði til fjögurra ára. Hefur verkefnið hlotið nafnið: Gott að eldast.

Það er ekki einfalt verkefni sem verkefnastjórnin fékk í hendurnar en nú, aðeins nokkrum mánuðum síðar, hafa drög að metnaðarfullri þingsályktunartillögu um aðgerðaráætlun verið sett í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin eru opin öllum til umsagnar. Áherslurnar sem birtast í aðgerðaráætluninni eru bæði í takt við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og alþjóðlegar áherslur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og Sameinuðu þjóðanna sem saman hafa tileinkað áratuginum heilbrigðri öldrun.

Samvinna

Verkefnastjórnin hefur lagt ríka áherslu á samvinnu og samráð í sinni vinnu þar sem málaflokkurinn hefur marga snertifleti. Sú áhersla endurspeglast vel í aðgerðaráætluninni sem byggir á fimm stoðum sem snúa að samþættingu, virkni, upplýsingum, þróun og heimili. Lagt er upp með ýmis þróunarverkefni í áætluninni þar sem árangur nýjunga og umbóta er metinn kerfisbundið. Þannig munu verkefnin nýtast sem best við ákvarðanatöku um framtíðarskipulag þjónustu við elda fólk.

Það er mikilvægt að eitt þjónustustig taki hnökralaust við af öðru og ábyrgð á þjónustuþáttum milli aðila sé skýr. Nálgun ólíkra fagstétta og fjölbreytt úrræði eru nauðsynleg en til þess að kerfið vinni sem ein heild þarf gott upplýsingaflæði. Með skilvirkri og öruggri upplýsingagjöf aukast gæði þjónustunnar og á því er sérstaklega tekið í aðgerðaáætluninni. Í því samhengi er nýsköpun ásamt starfrænum lausnum mikilvæg.

Skýr framtíðarsýn

Gott að eldast er verkefni þjóðarinnar. Einstaklingurinn er þungamiðjan sem verkefnið og velferðarkerfið snýst um. Einstaklingurinn á að hafa aðgang að fjölbreyttri og samþættri þjónustu. Hvort sem það er heilbrigðisþjónusta, félagsþjónusta eða önnur stuðningsþjónusta. Heima eða í öðrum búsetuúrræðum. Við vitum hvert við viljum stefna en til þess að ákvarða hvaða leiðir eru best til þess fallnar er verkefni eins og þetta mikilvæg varða.

Höfundur er heilbrigðisráðherra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×