Skoðun

Sér­reglur í þágu sér­hags­muna

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Verðbólgan bítur og hún bítur fast. Fyrst og fremst bitnar hún á heimilum landsins sem greiða nú þegar eitt hæsta matvöruverðið, ekki síst þegar kemur að landbúnaðarvörum. Raunar greiða íslensk heimili eitt hæsta verðið fyrir allar sínar vörur. Margt liggur að baki þessa háa vöruverðs en að stórum hluta skýrist vandinn af þeim samkeppnisskorti sem hér ríkir og er markvisst viðhaldið með ákvörðunum og aðgerðum núverandi ríkisstjórnar.

Nú á svo að veita enn eina undanþáguna frá reglum samkeppnislaga. Það boða ný frumvarpsdrög matvælaráðherra um aðgerðir til að koma til móts við afurðastöðvar í sláturiðnaði. Breyting ráðherrans er sögð mæta erfiðri stöðu afurðastöðva án þess að bitna á neytendum eða öðrum aðilum markaðarins. En það fæst varla staðist sé horft til reynslunnar.

Höfum hugfast að almennar samkeppnisreglur eru settar til að tryggja jafnræði og standa vörð um almannahagsmuni. Annað gildir hins vegar um sérreglurnar. Þær þjóna sértækum hagsmunum fremur en sameiginlegum. Við þekkjum auðvitað mörg dæmi af því hvernig sérreglur hafa á endanum alltaf komið sér illa fyrir neytendur. Slíkar reglur draga úr hvötum til verðlækkana og hindra nýsköpun og framþróun, með tilheyrandi viðbótarkostnaði.

Virk samkeppni skiptir nefnilega öllu máli fyrir íslenskan almenning og velferð þjóðarinnar. Samkeppnin hefur reynst okkur vel á þeim sviðum sem hún hefur fengið að njóta sín á meðan samkeppnisskorturinn hefur reynst okkur þungbær. Kostnaðurinn blasir við á ýmsum sviðum og snertir okkur öll. Nefnum sem dæmi þær landbúnaðarvörur sem þegar falla utan ákvæði samkeppnislaga. Þær hafa jú lengi leitt lestina í verðhækkunum matvæla hér á landi.

Við eigum að standa vörð um samkeppni þegar verðbólgan eykst, þegar vöruverð hækkar upp úr öllu valdi. Hún er nefnilega besta meðalið á slíkum tímum. Þess vegna er mikilvægt að bæta ekki á vandann með samkeppnishindrunum og öðrum aðgerðum sem grafa undir virkri samkeppni. Vandinn er einmitt samkeppnisskorturinn sem hér ríkir, ekki samkeppnin sjálf.

Ríkisstjórnin hefur nú enn og aftur sýnt að hún stendur ekki vörð um heilbrigða og öfluga samkeppni á mörkuðum. Miklu heldur á fákeppnin þar skjól. Þess vegna skiptir öllu máli að tryggja að næsta ríkisstjórn beri hag neytenda fyrir brjósti og trúi á mátt virkrar samkeppni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×