Skoðun

Á­stand í bú­fjár­eftir­liti há­alvar­legt varðandi dýr í neyð

Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar

Sá óhugnaður á vanhöldum dýra í Borgarnesi sem birst hefur á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum síðustu daga og vikur er hörmulegur. Nú hafa verið birtar myndir af kúm sem skv. heimildum hefur verið haldið inni undanfarin þrjú ár, en voru settar út að lokum og standa þær nú í köldu haustveðrinu, grindhoraðar og með takmarkaðan aðgang að vatni og fóðri. Einnig eru áhyggjur af sauðfé á bænum.

Nautgripir á svæðinu í gær.

Það verður að segjast eins og er að staðan í málinu í Borgarbyggð er áfellisdómur yfir vinnubrögðum Matvælastofnunar (MAST) í málinu. Ástandið varðandi búfjáreftirlit er háalvarleg þegar kemur að dýrum sem eru í neyð eins og við blasir í þessu tiltekna máli. Dýraverndarsambandið (DÍS) hefur sömuleiðis áhyggjur af fleiri alvarlegum málum tengdum búfénaði í landinu sem félagið hefur til skoðunar.

Unghrossin þrettán sem felld voru í síðustu viku voru undir eftirliti stofnunarinnar frá því þau voru sett út á beit fyrr í haust. Samt standa mál þannig að aflífa þurfti þessi hross. Það eru óviðunandi leikslok þar sem MAST var fyrst tilkynnt um neyð dýranna í júní, en ekki í seint í sumar eins og haldið hefur verið fram. Hér hafa yfirvöld, sem fara með málefni er varða velferð dýra, sér í lagi MAST, brugðist skyldu sinni. Sá lagarammi sem stofnunin hefur til að vinna eftir í málum er varða velferð dýra, lög nr. 55/2013, eru skýr hvað varðar að koma dýrum hratt og örugglega til hjálpar og í skjól á meðan mál eru unnin (38. og 39. gr.). Einhverra hluta vegna virðist MAST ekki nýta þær heimildir sem lögin veita og því verður að breyta. Tilgreina hefði átt tilsjónarmann á meðan unnið var að viðunandi lausn málsins, fremur en að skilja dýrin eftir í fórum aðila sem þegar var búinn að brjóta á þeim. Samkvæmt gildandi lögum er stofnunni það heimilt.

Eftirlit með velferð dýra er í þeim tilgangi að verja þau réttindi sem dýr hafa samkvæmt lögum. Það er skýrt í markmiðum laganna að dýr skuli vera laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að viðurkennt er að dýr eru skyni gæddar verur. Það er því eðlileg krafa í garð MAST, stofnunar sem á að sjá til þess að farið sé að þessum lögum, að velferð dýra sé í forgangi og viðbrögð í dýravelferðarmálum hagað samkvæmt því.

Dýraverndarsamband Íslands krefst tafarlausra aðgerða af hálfu stjórnvalda í málinu og að þessum dýrum í Borgarbyggð verði komið í örugga umsjá á meðan málið er til meðferðar þar sem heilsa og velferð þeirra verði tryggð.

Höfundur er formaður Dýraverndarsambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×