Skoðun

Ekki þurfti lengi að bíða þess að við Há­skólann á Akur­eyri færi fram doktors­vörn

Eyjólfur Guðmundsson skrifar

Heimild til doktorsnáms skiptir sköpum fyrir sjálfstæðan háskóla. Með doktorsnámi er tryggt að nám og rannsóknir eru stundaðar jöfnum höndum við Háskólann á Akureyri og að háskólinn getur sérhæft sig enn frekar til að verða uppspretta þekkingar fyrir landið allt – en ekki síst fyrir landsvæði utan höfuðborgarinnar. Samfélög nútímans, og í enn auknum mæli samfélög framtíðarinnar, munu krefjast gríðarlegrar þekkingar á öllum sviðum svo unnt sé að viðhalda bestu lífsgæðum fyrir okkur öll. Þekkingarleit háskólanna er grundvallaratriði í því ferli og kjölfesta fyrir aukin verðmæti, betri skilning á heiminum öllum og betri þekkingu á okkur sjálfum og samfélögum okkar. Án doktorsnáms gæti Háskólinn á Akureyri ekki tekið næstu skref inn í framtíðina.

Á þeim 35 árum sem Háskólinn á Akureyri hefur starfað hefur starfsfólk hans, stuðningsaðilar og nærsamfélögin okkar (um land allt) svo sannarleg tekið höndum saman um að búa til öfluga rannsókna- og menntastofnun sem stenst öðrum háskólum fyllilega snúning.

Háskólinn á Akureyri hefur vaxið ár frá ári í stúdentafjölda en jafnframt náð að viðhalda gæðum náms, líkt og fram kemur í könnunum á meðal stúdenta. Háskólinn hefur einnig verið í fararbroddi hvað varðar stafræna miðlun náms (eða fjarnáms) og lyft grettistaki í þeim málum fyrir landið allt svo eftir hefur verið tekið.

Fræðafólk HA hefur aukið rannsóknavirkni sína verulega á síðustu árum og í skýrslu Menntamálaráðuneytisins, sem kom út fyrr á árinu, kom fram að rannsóknastig á hvern akademískan starfsmann (miðað við árið 2019) var til jafns á við rannsóknastig annarra opinberra háskóla.

Staða Háskólans á Akureyri hefur jafnframt verið mjög sterk þegar horft hefur verið til niðurstöðu úr stofnanamati Gæðaráðs íslenskra háskóla en HA hefur farið í gegnum tvær stórar allsherjarúttektir á síðustu 10 árum og í bæði skiptin fengið mjög jákvæða umsögn erlendra úttektaraðila, eins og sjá má á heimasíðu Gæðaráðsins.

Á sama tíma hefur starfsfólk verið jákvætt í svörum sínum í könnun um stofnun ársins og þar hefur HA verið hæstur á meðal opinberra háskóla – og allt hefur þetta gengið innan fjárhagsramma þó stundum hafi það staðið óþægilega tæpt.

Undirbúningur þess að unnt væri að hefja doktorsnám við HA á sér langa sögu en formlega fór ferlið af stað upp úr 2009. Í stefnu háskólans 2012 – 2017 var viðurkenning á doktorsnámi fyrir HA eitt af meginmarkmiðum skólans og það markmið náðist þann 20. október árið 2018 þegar þáverandi menntamálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, skrifaði undir heimildina við hátíðlega athöfn í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri.

Það má því með sanni segja að Háskólinn á Akureyri hafi að endingu sannað sig sem ein helsta menntastofnun landsins og líklegast ein best heppnaða aðgerð stjórnvalda til að efla aðgengi að háskólamenntun á landinu öllu. Við vonumst því eftir að stjórnvöld sjái sér hag í að efla Háskólann á Akureyri enn frekar á næstu árum.

Í dag er því merkisdagur í sögu Háskólans á Akureyri þegar fram fer fyrsta doktorsvörnin við skólann. Karen Birna Þorvaldsdóttir mun verja ritgerð sína í heilbrigðisvísindum en ritgerðin ber heitið: Að skilja og mæla hindranir þess að leita sér hjálpar eftir áfall – Þróun á mælitæki með blönduðum aðferðum.

Vörnin hefst kl. 13 í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri og er öllum opin. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Sigríðar Halldórsdóttur, prófessors við Háskólann á Akureyri. Auk hennar voru í doktorsnefnd Denise Saint Arnault, prófessor við University of Michigan í Bandaríkjunum, Rhonda M. Johnson, prófessor við University of Alaska Anchorage í Bandaríkjunum, og Sigrún Sigurðardóttir, dósent við Háskólann á Akureyri.

Andmælendur eru Stefanía Ægisdóttir, prófessor í sálfræði við Ball State University í Bandaríkjunum, og Maria Wemrell, dósent í lýðheilsuvísindum við Lunds universitet í Svíþjóð.

Með þessari fyrstu doktorsvörn er jafnframt svarað lokaorðum Haraldar Bessasonar, fyrsta rektors Háskólans á Akureyri, er hann skrifaði í ritgerð um háskóla á Akureyri að „Hugmyndir um hærri háskólagráður eru enn á reiki. Þó má ætla að ekki þurfi lengi að bíða þess að stúdentar geti stefnt að meistara- og doktorsgráðum….“

Það er rétt að ávarpa Harald beint á þessari stóru stund Háskólans á Akureyri: „Ágæti Haraldur, það tók aðeins 35 ár frá stofnun háskólans þar til fyrsta doktorsvörn stúdents HA fór fram. Það er skammur tími í sögu háskóla almennt og varstu virkilega framsýnn í orðum þínum frá árinu 1986.“

Við óskum doktorskandídat góðs gengis í vörn sinni í dag og starfsfólki, fræðasamfélaginu við HA og annarsstaðar, svo og landsmönnum öllum, innilega til hamingju með þennan áfanga.

Höfundur er rektor Háskólans á Akureyri.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×