Rafíþróttir

Leikmannaspá Ljósleiðaradeildarinnar: Íslandsmeistarinn og nýliðarnir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
NÚ er spáð áttunda sæti Ljósleiðaradeildarinnar.
NÚ er spáð áttunda sæti Ljósleiðaradeildarinnar.

Leikmenn Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO spá NÚ áttunda sæti deildarinnar á komadi tímabili.

Ljósleiðaradeildin í CS:GO hefst með pompi og prakt næstkomandi þriðjudag og af því tilefni mun Vísir birta spá sem leikmenn deildarinnar settu saman fyrir tímabilið sem framundar er.

NÚ er spáð áttunda sæti deildarinnar, en liðið er nýtt í deildinni. NÚ er í raun liðið sem áður hét XY og PANDAZ er eini leikmaðurinn sem var í liðinu í fyrra.

NÚ mætir því með nánast splunkunýtt lið til leiks, en þó fékk liðið Bjarna til liðs við sig frá Dusty þar sem hann varð Íslandsmeistari á seinasta tímabili. Það verður því forvitnilegt að sjá hvernig liðinu gengur með hann innanborðs.

Liðsmenn Nú eru: PANDAZ (Ásmundur Viggósson), Bjarni (Bjarni Þór Guðmundsson), clvr (Stefán Dagbjartsson), RavlE (Elvar Orri Arnarsson), bl1ck (Brimir Birgisson) og Dutchy (John Russell Holland).

Fyrsti leikur NÚ er gegn nýliðum Fylki fimmtudaginn 15. september klukkan 19:30. Fylkismönnum er spáð neðsta sæti deildarinnar og því ættu liðsmenn NÚ að líta á þetta sem gott tækifæri til að byrja tímabilið af krafti.

Ljósleiðaradeildin hefst næstkomandi þriðjudag, 13. september, en útsending hefst klukkan 19:15 og verða tveir leikir spilarðir, kl 19:30 og 20:30. Á fimmtuddögum verða svo þrír leikir spilaðir til að loka umferðinni og hefst útsending þá líka kl 19:15, en leiktímar eru 19:30, 20:30 og 21:30. Beinar útsendingar alltaf á Stöð 2 eSport og Twitch-rás RÍSÍ.


Tengdar fréttir






×