Skoðun

Hvað er planið?

Sara Dögg Svanhildardóttir og Unnur Helga Óttarsdóttir skrifa

Á hverju ári útskrifast 65-90 fötluð ungmenni af starfsbrautum framhaldsskólanna.

Þessi ungmenni hafa farið í gegnum skólakerfið frá leikskóla yfir í grunnskóla og standa á sömu tímamótum og ófatlaðir jafnaldrar við útskrift úr framhaldsskóla. Eftirvænting og tilhlökkun ætti að vera þeim efst í huga líkt og annarra ungmenna en fyrir flesta er það því miður ekki staðan. Menntakerfið okkar skapar ekki rými fyrir alla, bara suma.

Hvað er planið? Er yfirskrift herferðar sem hefst í dag. Þar varpa Landssamtökin Þroskahjálp ljósi á stöðu fatlaðra ungmenna þegar kemur að námstækifærum að loknu námi af starfsbrautum framhaldsskólanna. Ungmennin sem koma að herferðinni eiga öll sína drauma og þrár og deila þeim með okkur næstu daga á samfélagsmiðlum sem og á strætóskiltum vítt og breytt um höfuðborgina.

Tækifæri fyrir öll líka fötluð ungmenni.

Rödd þeirra er sterk og skýr. Fötluð ungmenni gera þá kröfu að hafa sömu tækifæri og önnur ungmenni, og draga fram þann fáránleika sem samfélagið hefur viðhaldið allt of lengi. Skilaboðin eru einföld og skýr: það er kominn tími til þess að breyta þessu.

En eins og eitt ungmennið orðar svo vel og nær að fanga kjarna málsins:

„Ég vonast til að allir fái tækifæri til að verða það sem þau langar til í framtíðinni og skora á stjórnvöld að breyta kerfinu eins og það er í dag. Þaðþarf að vera með nám sem stendur til boða fyrir fatlaða og bjóða upp á þá hluti sem hægt er að bjóða upp á til að ýta fólki lengra í því sem það vill verða. Láta eins marga hluti verða mögulegir og fræðilegt er.“

Tíminn til þess að breyta er núna!

Fötluð ungmenni hafa mjög takmörkuð námstækifæri og fáar, afmarkaðar leiðir til að mennta sig. Það er sorglegt að sjá hvernig kerfið okkar mætir þessum dýrmæta og kraftmikla hópi og við því þarf að bregðast. Enginn mælir þessu bót, enginn telur það sanngjarnt eða réttlætanlegt að fatlað fólk njóti ekki sömu réttinda og annað fólk. Samt halda hlutirnir áfrm að malla í sama farinu ár eftir ár. Kerfið er mannanna verk og því er ekki eftir neinu að bíða.

Á sama tíma verður atvinnulífið og hið opinbera að taka höndum saman og vera tilbúin til að taka á móti fötluðu fólki á vinnumarkaðinn. Mikilvægt er að tryggja fötluðu fólki góð og spennandi störf, og viðeigandi stuðning til þess að sinna þeim.

Tökum höndum saman og sköpum náms- og atvinnutækifæri fyrir öll. Líka fötluð ungmenni! Þú getur lagt fötluðum ungmennum lið með því að skrifa undir á askorun.throskahjalp.is. Undirskriftirnar verða afhentar ríkisstjórn Íslands og Samtökunum atvinnulífsins.

Sara Dögg Svanhildardóttir, – verkefnastjóri náms- og atvinnutækifæra hjá Þroskahjálp

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×