Vallarmet og sviptingar á toppnum Valur Páll Eiríksson skrifar 6. ágúst 2022 21:30 Sigurður Bjarki Blumenstein jafnaði vallarmetið í Eyjum. Mynd/[email protected] Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, er með tveggja högga forystu fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Vestmannaeyjavelli. Sigurður Bjarki Blumenstein jafnaði vallarmetið í Eyjum á hring dagsins.
Birgir Guðjónsson, úr Golfklúbbnum Esju, var með forystuna fyrir daginn en hann lék á tveimur höggum yfir pari vallar í dag og féll niður í fjórða sæti sem hann deilir með þeim Kristóferi Karli Karlssyni, úr GM, og Böðvari Braga Pálssyni, úr GR, en allir eru þeir á þremur undir pari í heildina. Þar fyrir ofan eru þeir Kristófer Orri Þórðarson, úr GKG, og Sigurður Bjarki Blumenstein, úr GR, á fjórum undir pari. Kristófer lék hrings dagsins á höggi undir pari en Sigurður Bjarki lék manna best á vellinum í dag og fór hringinn á átta höggum undir pari vallar. Hann fékk níu fugla og einn skolla á hringnum, en með spilamennsku sinni jafnaði hann vallarmetið á Vestmannaeyjavelli. Kristján Þór Einarsson lék næst best í dag en hann fékk átta fugla á hringnum og einn skramba. Hann var því á sex höggum undir pari en það er einnig heildarskor hans, þar sem hann var á pari fyrir daginn. Kristján er því með tveggja högga forystu fyrir spennandi lokadag á morgun.
Íslandsmótið í golfi Mest lesið Átján ára vonarstjarna pílukastsins dæmd í átta ára bann Sport Í beinni: Ísland - Þýskaland | Úrslitaleikur í Innsbruck Handbolti Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Handbolti Hill hneykslaður: „Er Schumacher harmleikurinn ekki nóg fyrir sumt fólk?“ Formúla 1 Ómar Ingi ekki með á HM Handbolti Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Handbolti Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ Handbolti Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Handbolti Grínaðist með 115 ákærur City: „Ég endurtek, þetta var grín“ Enski boltinn „Miklu betri og stærri þjálfarar en ég sem hafa verið reknir“ Körfubolti Fleiri fréttir Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira