Skoðun

Druslu­gangan haldin á ný

Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar

Nú á laugardaginn, þann 23. júlí, verður samstaða með þolendum kynferðisofbeldis sýnd í verki á nýjan leik þegar við göngum saman frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll kl. 14:00.

Druslugangan verður haldin aftur eftir tveggja ára hlé vegna heimsfaraldurs, en fyrsta Druslugangan á Íslandi átti sér stað sama dag, þann 23. júlí árið 2011 og var yfirlýst markmið hennar að vekja athygli á því hvar ábyrgðin liggur þegar kynferðisofbeldi er annars vegar – hjá gerendum þess, ekki þolendum. Gangan á Íslandi var haldin í kjölfar fyrstu Druslugöngunnar í heiminum, eða Slut Walk, sem gengin var í Toronto, Kanada sama ár sem mótsvar við orðum sem lögreglumaður lét falla á háskólafyrirlestri í borginni – að konur þyrftu að forðast að klæðast eins og druslur til þess að verða ekki fórnarlömb. Þó að hann hafi síðar beðist opinberlega afsökunar á orðum sínum urðu þau engu að síður neistinn sem leiddi til þess að Druslugöngur voru haldnar um allan heim, því mörgum þótti þau endurspegla nauðgunarmenningu (e. rape culture) – menningu sem ýtir undir og viðheldur normaliseringu kerfisbundins kynferðisofbeldis gegn konum og jaðarhópum. Vitundarvakningin sem Druslugangan hefur staðið fyrir frá byrjun snýst um að gagnrýna þessa menningu og neita að samþykkja háa tíðni kynferðisbrota og áreitis sem eðlilegan þátt í samfélaginu.

Druslugangan í ár, ellefu árum síðar, er byggð á þessum sömu grunngildum og áhersla verður áfram lögð á upprætingu nauðgunarmenningar og kynferðisofbeldis. Ef við hugsum aftur til orða lögreglumannsins sem urðu kveikjan að Druslugöngum víðsvegar um heim, er það ekki einungis innihald þeirra sem er umhugsunarvert, heldur einnig að ummælin hafi komið frá lögreglumanni. Vitundarvakning meðal almennings er nauðsynleg, en viðhorf og vinnubrögð aðila í valdastöðu verða að vera þolendavænni en svo að ábyrgð sé varpað yfir á klæðaburð brotaþola. Hér á Íslandi hefur samfélagsumræðan lengi verið hávær hvað varðar annmarka íslenska réttarvörslukerfisins þegar kemur að málsmeðferð og rannsóknum á kynferðisbrotum, og því kerfislæga ofbeldi sem minnihlutahópar verða fyrir. Í ár verða áherslur Druslugöngunnar því sérstaklega sniðnar að því að vekja upp samtal varðandi þátt valdakerfa á Íslandi í berskjöldun jaðarsettra hópa fyrir kynferðisofbeldi. Eftir að við göngum saman til stuðnings þolendum munu ræðuhaldarar á Austurvelli deila upplifun sinni af íslenskum valdakerfum og fræða okkur um hvernig við getum orðið betri bandamenn og tekið virkan þátt í að rífa kerfislægt misrétti og kynferðisofbeldi upp með rótum.

Höldum umræðunni á lofti og krefjumst betrumbóta saman. Sjáumst á laugardaginn.

Höfundur er meðlimur í skipulagsteymi Druslugöngunnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×